Trausti fasteignasala kynnir fallegt og vel skipulagt einbýlishús á einni hæð á einstaklega rólegum og skemmtilegum stað í Foldahverfinu í Grafarvogi í Logafold. Bílskúr er mjög rúmgóður og er í dag 2ja herbergja aukaíbúð með sérinngang, en einnig innangengt úr húsinu. Húsið stendur neðst í stuttum botnlanga og því einstaklega rólegt við götuna. Skemmtilegar gönguleiðir og náttúra í næsta nágrenni. Gólfefni skiptist í gegnheila eik og góðar flísar.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Eignin er skráð samkvæmt fasteignayfirliti 245,5 fm og þar af er bílskúr skráður 45 fm.
Nánari lýsing:
Forstofa er mjög rúmgóð með flísum á gólfi og góðum yfirhafnaskáp.
Hol með parket á gólfi.
Skrifstofa (svefnherbergi IIII) út frá holi er rúmgóð með parket á gólfi.
Stofa er björt og rúmgóð með parket á gólfi. Útgengt á stóran pall í suður með heitum potti og þaðan út í garð.
Borðstofa með flísar á gólfi á palli við hlið stofu og þaðan opið beint inn í eldhús.
Eldhús er rúmgott með fallegri eldri innréttingu, ofn í vinnuhæð, háf yfir helluborði, innbyggð uppþvottavél og góður borðkrókur. Flísar á gólfi.
Sjónvarpshol með parket á gólfi og svefnherbergisgangur þar við.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með parket á gólfi og góðan fataskáp. Útgengt í garð úr hjónaherbergi.
Svefnherbergi II er rúmgott með skáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi III er rúmgott með parket á gólfi.
Baðherbergi er rúmgott og flisalagt í hólf og gólf. Stór "walk-in" sturta og baðkar, góð innrétting og gluggi.
Gestasalerni er við hol.
Stórt
þvottahús/geymsla með flísar á gólfi og með 2 góðum skápum. Útgengt við norðurhlið hússins.
Risloft/geymlsuloft er yfir öllu húsinu og er ekki skráð í fermetratölu hússins.
Bílskúr er mjög rúmgóður og er skipt í 2 herbergi, stofu og svefnherbergi og auk þess er salerni í bílskúr. Sérinngangur að framanverðu í bílskúr og innangengt.
Fallegt hús á frábærum stað í rótgrónu og rólegu hverfi í Grafarvogi. Stutt í grunn- og leikskóla sem og alla helstu þjónustu. Stutt í góðar gönguleiðir og guðsgræna náttúruna.
Nánari upplýsingar um eignina veita Kristján Baldursson, löggiltur fasteignasali, í síma 867-3040 eða á netfanginu kristjan@trausti.is og Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is