VALBORG kynnir í einkasölu parhúsaíbúð við Arnarheiði 15B, 810 Hveragerði.
Snyrtileg endaíbúð í parhúsi, innst í botnlangagötu.
Eignin er samtals 90,3 m2 að stærð, samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Eignin telur forstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, stofu/borðstofu, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Hellulagt bílastæði fyrir framan hús og upp að húsi.
Gott göngustígahverfi er allt um kring, fallegir móar og opin svæði.Sjá staðsetningu hér:Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.Lýsing eignar:Forstofa: er flísalögð. Frá forstofu er innangengt í geymsluherbergi með glugga.
Baðherbergi: flísalagt, innrétting með handlaug og skápaplássi, salerni og sturtuklefi.
Hjónaherbergi: parket á gólfi og stór fimmfaldur fataskápur.
Barnaherbergi: parket á gólfi, tvöfaldur fataskápur.
Eldhús: er opið og bjart með upprunalegri eldhúsinnréttingu, bakarofn í vinnuhæð, pláss fyrir uppþvottavél og ísskáp.
Frá eldhúsi er innangengt í þvottahús.
Alrými með stofu og borðstofu.
Útgengt er úr stofu í garð og sólpall. Á lóðinni er einnig snyrtilegur geymsluskúr.
Bílaplan er hellulagt, bílastæði fyrir tvo bíla. Hellulagt heim að útidyrahurð.
Ný blöndunartæki í sturtu 2024
Eignin var máluð að utan 2022
Nýtt gólfefni í svefnherbergi 2020
Skipt um þrýstijafnara 2019
Gólfefni í stofu og eldhúsi 2015
Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, lgf, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Elínborg María Ólafsdóttir, lgf, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.