Guðrún Antonsdóttir fasteignasali kynnir rúmgóða og bjarta 3ja herbergja endaíbúð á 2.hæð, sem nær í gegnum húsið. Íbúðin getur verið laus fljotlega eftir kaupsamning. Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð að innan m.a. baðherbergi, eldhúsinnrétting og tæki, nýtt parket og endurnýjað rafmagn hefur verið lagt í alla íbúðina sem og nýjir ofnar.
Eignin skiptist í Forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Nánari lýsing:
Forstofa með yfirhafnaskáp og parketi á gólfi.
Eldhús með hvítri innréttingu frá Ikea sett upp 2019 með neðri skápum, bakaraofn í vinnuhæð, innbyggðri uppþvottavél. Eyja sem hægt er að sitja við með Span helluborði
Stofan er björt og opin inn í eldhús. Gluggar á tvo vegu. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergin er tvö með fataskápum og harðparketi á gólfi.
Baðherbergið er endurnýjað 2019 er með innréttingu undir og yfir handlaug, sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni, opnanlegum glugga og flísum á gólfi og veggjum.
Þvottahús er innan íbúðarinnar með flísum á gólfi. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Ljós innrétting undir og yfir vélum.
Sérgeymsla er í sameign húss, 12.9fm. Geymslan er í enda með tveimur gluggum.
Endurbætur á húsi síðustu ára að sögn núverandi og fyrrum eiganda húss
Þak yfirfarið og lagað, þakrennur endurnýjaðar, opnanleg fög á norðhlið endurnýjuð 2021
Endurbætur á eigninni sjálfri
Árið 2019 var
* Dregið nýtt rafmagn, dimmer er í stofu og eldhúsi
* Skipt um alla ofna
* Settar nýjar innihurðir
* Baðherbergi endurnýjað ( ekki glugginn inn á baðherbergi)
* Eldhúsinnrétting sett upp frá IKEA og raftæki, bakaraofn og uppþvottavél
* Skápar í svefnherbergjum, forstofu og þvottahúsi frá Brúás
* Gólfefni á allri eigninni, harðparket og flísar
Hjóla- og vagnageymsla: sameiginleg í kjallara.
Húsgjöld eignarinnar eru 18.955 kr fyrir heildar húsið, og stigagagur 19.424kr á mánuði, innifalið í húsgjöldum er almennur rekstur, sjóður, hiti á íbúð, rafmagn í sameign, húseigandatrygging og þrif sameignar. Húsfélagið um heildarhúsið er í þjónustu hjá Eignarumsjón
Samkvæmt fasteignamati ríkissins er íbúð á hæð skráð 76,6 fm og geymsla í kjallara skráðar 12,9 fm samtals 89,5 fm, ásamt sameignarrými í kjallara.
Frábær staðsetning rétt við óbyggt svæði og stutt er í fallegar gönguleiðir um Fossvogs og Elliðaárdalinn, stutt er í skóla, leikskóla og aðra þjónustu.
Frekari upplýsingar veitir Guðrún Antonsdóttir fasteignasali í síma 621-2020 eða á gudrun@fastlind.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignsala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 74.900 kr.