Domusnova og Ingunn Björg lgf. kynna bjarta og rúmgóða 4ra herbergja íbúð með sérinngangi í þríbýlishúsi á eftirsóttum stað í Vesturbæ Kópavogs. Um er að ræða sjarmerandi og vel skipulagða íbúð með suðursvölum, glæsilegt útsýni ti sjávar, yfir Kópavoginn,
Arnarnesið sunnan megin, og yfir Borgarholt og Kópavogskirkju norðanmegin. Eignin skiptist í anddyri, hol, eldhús, stofu / borðstofu, þrjú svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Mjög rúmgott 88 fm2 risloft er fyrir ofan íbúðina sem ekki er inni í fermetratölu eignarinnar. Skv. FMR er eignin skráð 92,6 fm2. Um er að ræða fallega og vel skipulagða íbúð með mikla möguleika. Staðsetningin er afar góð á fjölskylduvænum og rólegum stað í Vesturbæ Kópavogs. Sundlaug Kópavogs er við enda götunnar, leikskóli og skóli eru í göngufæri auk þess sem örstutt er í alla helstu verslun og þjónustu. Góðar almenningssamgöngur eru í nálægð sem og fallegar göngu- og hjólaleiðir. Nánari lýsing eignar:
Andyri: Málað gólf.
Stigi: Fallegur steyptur stigi með máluðu gólfi liggur upp í íbúðina.
Hol: Rúmgott og bjart hol. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Innrétting með frístandandi eldavél, háfur, tengi fyrir uppþvottavél, flísart á gófli. Fallegt útsýni.
Stofa / borðstofa: Rúmgóð og björt, útgengt á suðursvalir. Fallegt útsýni til sjávar.
Herbergi 1: Rúmgott og bjart, gluggar á tvo vegu, innbyggðir fataskápar. Parket á gólfi.
Herbergi 2: Rúmgott og bjart, harðparket á gólfi.
Herbergi 3: Rúmgott og bjart, harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt gólf og veggir að hluta, innrétting undir vaski, baðkar með sturtu, tengi fyrir þvottavél. Gluggi með opnanlegu fagi.
Risloft: Rúmgott 88 fm2 risloft er fyrir ofan íbúðina sem býður upp á ýmsa möguleika.
Garður og lóð: Sameiginlegur gróinn og vel hirtur garður er fyrir framan hús ásamt rúmgóðu bílaplani. Sér bílastæði með hleðslustöð á lóð framan við hús.
Nánari upplýsingar veita:Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.