** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt og rúmgott 207,4 m2, einbýlishús með innbyggðum bílskúr (í dag nýttur sem auka íbúð) við Asparlund 7 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 207,4 m2, þar af íbúð 182,2 m2 og bílskúr 25,2 m2. Einnig er búið að útbúa rými í risi ca. 30 m2 sem er ekki í fermetratölu eignarinnar. Í garðinum er einnig 15 m2 fulleinangrað smáhýsi með rafmagni. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning. Frábært staðsetning rétt við Varmá með fallegum gönguleiðum og upp á næstu fjöll.Eignin skiptist í dag í 6 svefnherbergi, stofu. borðstofu, eldhús, 5 baðherbergi, þvottahús, forstofu, geymslu, hæð og bílskúr. Búið er að breyta bílskúr í auka íbúð sem býður upp á leigutekjur. Einnig er búið er að útbúa herbergi og baðherbergi á efri hæð. Stór bakgarður í suðurátt með timburverönd og heitum potti. Eignin stendur á 851,8 m2 eignarlóð.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.Nánari lýsing:Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp
Stofa rúmgóð og með parketi á gólfi
Borðstofa er björt og með flísum á gólfi. Úr borðstofu er gengið út á timburverönd og bakgarð í suðurátt.
Eldhús er með fallegri hvítri innréttingu og eyju. Í innréttingu er helluborð, háfur og ofn. Gott skápapláss og flísar á gólfi.
Svefnherbergi Nr. 1 (hjónaherbergi) er rúmgott og með parketi á gólfi. Úr herbergi er gengið út á timburverönd með heitum potti . Innaf herbergi er fataherbergi og baðherbergi nr. 1.
Baðherbergi Nr. 1 er innaf hjónaherbergi og er með salerni, innréttingu, handklæðaofn og skolvask. Gert er ráð fyrir sturtu inná baðherberginu.
Svefnherbergi Nr. 2 er með parketi á gólfi og fataskáp
Svefnherbergi Nr. 3 er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi Nr. 4 er með parketi á gólfi.
Baðherbergi Nr. 2 er með salerni og skolvask.
Baðherbergi Nr. 3 er flísaagt í hólf og gólf. Innrétting, vegghengt salerni, handlæðaofn og baðkar með sturtu aðstöðu
Þvottahús er með innréttingu og góðu skápaplássi. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Geymsla er innaf þvottahúsi. Úr geymslu er gengið út a bílaplan og innangeng er í bílskúr úr geymslu.
Efri hæð (um 30 m2 og er ekki inni í fermetratölu):Svefnherbergi Nr. 5 er í opnu rými með parketi á gólfi. Innaf herbergi er fataherbergi.
Baðherbergi Nr. 4 er með salerni, skolvask og sturtu.
Bílskúr (auka íbúð) er 25,2 og er búið að útbúa auka íbúð. Íbúðin skiptist í forstofu, baðherbergi og alrými með vask og lítilli innréttingu.
Garðhús er fulleinangrað og um 15 m2 sem eru ekki inni í fermetratölu hússins.
Verð kr. 157.000.000,-