Föstudagur 6. júní
Fasteignaleitin
Opið hús:07. júní kl 14:00-14:30
Skráð 3. júní 2025
Deila eign
Deila

Barðavogur 34

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
272.9 m2
6 Herb.
6 Svefnh.
4 Baðherb.
Verð
184.900.000 kr.
Fermetraverð
677.538 kr./m2
Fasteignamat
129.150.000 kr.
Brunabótamat
69.610.000 kr.
Mynd af Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1951
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2022782
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Neysluvatns- og ofanlagnir endurnýjaðar
Raflagnir
Endurnýjaðar töflur og rafmagn
Frárennslislagnir
Upprunalegar, myndað síðast 2017, þá voru þær í lagi.
Gluggar / Gler
Nýir gluggar á öllum kjallara og í stúdíóíbið, aðrir gluggar yfirfarnir og málaðir.
Þak
Upprunalegt
Svalir
Já, tvennar svalir
Upphitun
Hefðbundið ofnakerfi, en gólfhiti í stúdíóíbúð
Inngangur
Margir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu:

Vel staðsett og huggulegt 10 herbergja einbýlishús þrem hæðum fyrir stórfjölskylduna eða þann sem leitar sér að eign með möguleika á góðum útleigutekjum. Staðsett í rótgrónu fjölskylduhverfi miðsvæðis í 104 Reykjavík við Barðavog 34. 

Eignin er í dag skráð hjá Fasteignaskrá 209,6 fm. að heildarstærð. Verið er að vinna að uppfærslu á skráningu eignarinnar sem er í samþykktarferli. Eftir það verður eignin skráð 242,8 fm + 30,1 fm. frístandandi bílskúr ( sem verður skráður sem tómstundarrými ) Samtals heildarstærð verður þ.a.l. 272,9 fm. Auk þess er gólfflötur efri hæðar er þó nokkuð stærri en uppgefnir fm segja til um, þar sem hluti hæðarinnar er undir súð.

Í kjallara er 55,0 fm. aukaíbúð með sérinngangi, þar að auki  er frístandandi 31,0 fm. bílskúr sem útbúinn hefur verið sem stúdío íbúð. (verður skráður sem tómstundarrými eftir uppfærslu á skráningu)

Á lóðinni er svo 14,9 m² einangraður geymsluskúr sem ekki er innan þessara fm.

Verönd með skjólveggjum og heitum potti, gróin og falleg lóð með stóra innkeyrslu með möl í. Húsið hefur fengið þann heiður frá vinum og vandamönnum að vera kallað "Sjónarhóll" Myndir tala sýna máli. 

Húsið er staðsett í rótgrónu fjölskylduhverfi miðsvæðis í Reykjavík, þar sem stutt er í alla þjónustu.

Til upplýsingar þá er fasteignasali tengdur seljendum, fjölskylduböndum. 

Smelltu á linkinn til að skoða húsið og aukaíbúðina í 3D

Smelltu á linkinn til að skoða stúdíó íbúðina í 3D


Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.is

Neðri hæð (aðalhæð): 
Komið er inn í flísalagt anddyri. Þaðan er komið inn í forstofu og hol íbúðar með viniylparket á gólfi og aðgengi inn í önnur rými neðri hæðar. Eldhúsið er bjart og gott með vínylparket á gólfi og borðkrók ásamt glugga sem gefur góða birtu inn. Eldhúsinnrétting er hvít og staðsett á móti hvor annarri. Þar er ofn og örbylgjuofn ofnar í vinnuhæð, tvöfaldur ísskápur og keramik helluborð með viftu þar fyrir ofan. Hvítur tvöfaldur vaskur og innbyggð uppþvottavél. Gott vinnu- og borðpláss ásamt  skúffum og skápum. Inn af eldhúsi er búr sem nýtist vel. Stofan er rúmgóð og björt og tengist vel borðstofunni, þar er vinylparket á gólfi og útgengi út frá borðstofu út um tvöfalda vængjahurð út á verönd með skjólveggjum, heitum potti og stórum geymsluskúr. Inn af borðstofunni er rúmgott og bjart svefnherbergi með fataskápum og parket á gólfi. Baðherbergið er opnanlegum glugga og vinylparket á gólfi, á veggjum eru flísar sem málaðar hafa verið hvítar. Hvít innrétting með skúffum og handlaug. Speglaskápur þar fyrir ofan. Upphengt salerni þar við hlið og sturtuklefi þar á móti. Úr forstofu/ holi er gengið upp teppalagðan stiga ( Sisal teppi/kókosteppi) upp á efri hæðina. Flott timburklæðning á veggjum gerir stigan mjög smekklegan.

Efri hæð: 
Komið er upp á  stigapall með útgengi út á svalir, það rými hefur verið notað sem vinnu-aðstaða. Þar á hægri hönd er mjög rúmgott herbergi með glugga í tvær áttir. Inn af stigapalli er svefnherbergisgangur. Tvö svefnherbergi inn af gangi og er annað þeirra mjög rúmgott og ævintýralegt. Á stigapalli, gangi og inn herbergjunum þrem, þar er hvítmálað parket á gólfum. Baðherbergið hæðarinnar er með flísum á gólfi og á veggjum, frístandandi baðkar og hvít innrétting með skúffum og spegli þar fyrir ofan. Upphengt salerni þar við hlið og opnanlegur gluggi. Á móti baðherberginu er lítil geymsla, auk þess er stórt og geymsluloft yfir allri hæðinni sem ekki er inn í skráðum fm. hússins. 

Kjallari:  Aðgengi er frá aðalhæð niður í kjallara hússins, þar eru góð rými og gott geymslupláss. Eitt þeirra er rými sem hægt er að nota sem geymslu en hefur verið notað sem æfingarrými. Það er ekki upphitað eins og er en lítið mál að tengja ofn þar sem stutt er í lagnir.
Þar er einnig að finna þvottahús og þurrk/lagna herbergi, en það rými hentar vel til þess að þurrka þvott. Undir stiganum er önnur lítil geymsla en þar er einnig að finna. Nýir gluggar hafa verið keyptir í allan kjallarann og verður húsið afhent með nýjum gluggum á öllum kjallaranum. 

Auk þess er sér þriggja herbergja íbúð er í kjallara með sérinngangi. Gólf var flotað, sett harðparket á forstofu, stofu, borðsstofu og í svefnherbergið. Sturtan var endurnýjuð á baðherberginu ásamt salerni og handklæðaofni. Opnanlegur gluggi er á baðherberginu. Eldhúsið er með flota gólf, engin gólfefni, hvít eldri innrétting með efri og neðri skápum. Gömul eldavél og aðstaða fyrir ísskáp. Íbúðin er öll mjög björt. Innangengt er inn í þvottahúsið frá eldhúsinu og inn í þurrkherbergið frá andyrri/holinu. 
ATH að nýjir gluggar hafa verið keyptir í allan kjallarann og verður húsið afhent með nýjum gluggum þar.

Bílskúrinn (31,1 fm) er frístandandi. Bílskúrinn er í dag innréttaður sem stúdíóíbúð, bílskúrinn er í sjálfu sér nýr að öllu leiti fyrir utan gólfplötu og útveggi. Virkilega vel heppnuð, björt og smekkleg stúdíóíbúð með sérinngangi, skjólveggjum og hellulagða verönd.
Komið er inn i flísalagt anddyri með skóskáp og snögum. Þaðan er gengið inn á bað gegnum rennihurð. Baðherbergi er flísalagt, og með upphengdu salerni og forsteyptum sturtubotni. Svefnrými er inn af anddyri og er aðskilið að hæuta til frá stofu/alrými með skilvegg. Í stofunni er tveir þakgluggar sem gefa einstaka birtu inn í rýmið og setja svip sinn á rýmið. Nýtt eldhús með innbyggðum ískáp undir borði og svörtum eldhúsvask. Eikarborðplata, spanhelluborð og ofn undir því. Frá svefnrými er útgengu út í lítin afmarkaðan garð sem snýr í suður og er hann einstaklega skjólsæll og hellulagður að hluta til.

Til upplýsingar, þá hafa núverandi eigendur búið í húsinu frá 2017 og þær helstu framkvæmdir sem þau hafa farið í eru eftirfarandi:

Aðal íbúð og lóð: Árið 2017 var gólfefni á neðri hæð endurnýjuð, innréttingar endurnýjaðar á baðherbergjum ásamt salernum, auk þess var bætt við frístandandi baðkari á baðherbergi efri hæðarinnar árið 2018. Árið 2020 var tvöföld vængjahurð og svaæir/tröppur til hafa útgengi út á verönd hússins frá borðstofunni. Árið 2020 var sett ný verönd með skjólveggjum og heitum potti með þráðlausri pottastýringu. Árið 2021 var sett upp 15m² einangrað garðhús. Árið 2022 var sett ný möl í alla innkeyrsluna. Árið 2023 var lóðin fyrir aftan hús tekin í gegn, jarðvegsskipti, gras og hellur. Árið 2025 voru settar nýjar rennur á allt húsið. Á árunum 2021 - 2025 hafa gluggar verið yfirfarnir, lagfærðir og málaðir.  Skipt um vatnsbretti og gerekti þar sem það þurfti.

Íbúð kjallara: Árið 2023 var gólf flotað, baðherbergi gert upp, lagnir endurnýjaðar, sturta flísalögð, sett nýtt salerni, handklæðaofn 2023. Árið 2025 var íbúðin máluð, harðparket sett þar á gólf, um þessar mundir er verið að skipta út öllum gluggum á neðri hæðinni. Árið 2018 var skipt um þrystijafnara og árið 2024 var settur heita neysluvatnið þrýstiminkari. 

Bílskúrinn (stúdíóíbúð): Árið 2021-2022 var bílskúrinn endurnýjaður að öllu leiti fyrir utan gólfplötu og útveggi en voru þeir múraðir og pússaðir upp á nýtt. Helstu atriði: Nýtt þak gólfhiti, nýir gluggar/hurðir/þakgluggar (Rationell). Nýtt eldhús. Nýtt baðherbergi. Nýjar Raflagnir ,hita og vatnslagnir. Nýtt frárennsli og nýtt þak.

Útistandandi verk, að bestu vitund eiganda: 
Aðallögn frá þvottahúsi út í götu, var myndað 2017 og var þá í lagi. 
Mögulega dren, það eru lagnir sýnilegar og var gert fyrir um 30 árum að sögn nágranna en ástand ekki vitað.

Að sögn fyrri eiganda hafði eftirfarandi verið endurnýjað áður en núverandi eigendur eignuðust húsið: 
Rafmagnstafla og raflagnir, (sér tafla fyrir íbúð kjallara)
Neyslu og hitavatnslagnir (sé mælir fyrir íbúð í kjallara)

Gerðar hafa verið nýjar teikningar af öllu húsinu sem og skráningartafla en einungis var að finna gamlar handgerðar teikningar. Fyrir vikið fylgja nú með rafrænar teikningar af húsinu.

Nánari upplýsingar: Guðlaugur J. Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali í síma 661-6056, gulli@remax.is 

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.






 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
10/08/201756.750.000 kr.72.000.000 kr.209.6 m2343.511 kr.
12/12/201244.100.000 kr.39.000.000 kr.209.6 m2186.068 kr.Nei
08/02/200838.780.000 kr.52.500.000 kr.209.6 m2250.477 kr.
08/05/200734.750.000 kr.51.000.000 kr.209.6 m2243.320 kr.
12/01/200734.750.000 kr.59.000.000 kr.209.6 m2281.488 kr.Nei
11/10/200631.750.000 kr.54.000.000 kr.209.6 m2257.633 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 1957
30.1 m2
Fasteignanúmer
2022782
Byggingarefni
Holsteinn
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
8.060.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kleppsvegur 94
Skoða eignina Kleppsvegur 94
Kleppsvegur 94
104 Reykjavík
285 m2
Einbýlishús
827
684 þ.kr./m2
195.000.000 kr.
Skoða eignina Brekkubær 4
Skoða eignina Brekkubær 4
Brekkubær 4
110 Reykjavík
305.6 m2
Fjölbýlishús
925
605 þ.kr./m2
185.000.000 kr.
Skoða eignina Seiðakvísl 33
Bílskúr
Skoða eignina Seiðakvísl 33
Seiðakvísl 33
110 Reykjavík
236.3 m2
Einbýlishús
614
813 þ.kr./m2
192.000.000 kr.
Skoða eignina Tómasarhagi 17
Bílskúr
Skoða eignina Tómasarhagi 17
Tómasarhagi 17
107 Reykjavík
257.6 m2
Hæð
825
773 þ.kr./m2
199.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin