** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 ** Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt og vel staðsett 313,6 m2 einbýlishús á þremur pöllum með innbyggðum bílskúr og aukaíbúð við Vesturhús 13 í suðurhlíð húsahverfisins í Grafarvogi með stórfenglegu útsýni yfir borgina. Stórt hellulagt bílastæði með snjóbræðslu. Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla. Stórar svalir með heitum potti og glæsilegu útsýni. Garðurinn er skjólgóður, gróinn og vel hirtur. Á lóðinni er sérsmíðað gróðurhús, gróðurkassar og tveir geymsluskúrar, sá stærri er einangraður með rafmagnsofni. Eignin er staðsett innst í botnlanga, við göngustíg sem liggur niður að Grafarvoginum. Stutt í leikskóla, grunnskóla, verslanir og þjónustu.
Eignin er skráð 313,6 m2, þar af aðalíbúðin 204,6 m2, bílskúrinn 49,1 m2 og aukaíbúðin 59,9 m2. Eignin var áður á tveimur fasteignanúmerum en er í dag á einu. Mögulegt væri að opna á milli eignanna og nýta sem eina fasteign.
Eignin skiptist í fjögur svefnherbergi (upphaflega fimm), baðherbergi, þvottahús, geymslu (væri hægt að breyta í salerni), forstofu, gang, bílskúr, eldhús með borðkrók, sjónvarps- og arinstofu, stofu og borðstofu. Aukaíbúðin skiptist í svefnherbergi, fataherbergi/geymslu, forstofu, baðherbergi, eldhús og stofu.
Endurbætur og viðhald á húsinu samkvæmt upplýsingum seljenda: Árið 2024: Þak yfirfarið og málað. Árið 2024-2025: Skipt var um gler í öllum gluggum á suður- og austurhlið hússins. Árið 2024 var baðherbergið endurnýjað og parket á efri hæð hússins pússað upp og olíuborðið. Árið 2023: Húsið var málað að utan og í aukaíbúð var sett nýtt parket og eldhúsinnrétting endurnýjuð.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sentNánari lýsing:Neðri hæð:Forstofa er rúmgóð með fataskáp og flísum á gólfi.
Gangur er með flísum á gólfi.
Geymsla er undir stiga. Hægt að breyta í gestasnyrtingu þar sem lagnir eru til staðar.
Þvottahús er rúmgott með flísum á gólfi, innréttingu, vinnuborði og vaski. Útgengt er í garð að vestanverðu.
Svefnherbergi nr.1 er með parketi á gólfi
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi.
Bílskúrinn er rúmgóður, skráður 49,1 m2, með tveimur innkeyrsluhurðum og inngönguhurð. Innangengt er inn í bílskúrinn af gangi. Bílskúrinn er með hillum, hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla, köldu og heitu vatni. Gólf er nýmálað.
Millipallur:Stór og björt
sjónvarps- og arinstofa, lögð með parketi og flísum.
Efri hæð:Stór stofa og borðstofa með parketi og flísum á gólfum, þaðan er útgengt á stóra verönd með skjólveggjum og heitum potti. Stórir gluggar góð lofthæð og stórfenglegt útsýni.
Eldhús er bjart og rúmgott með hvítri innréttingu, borðkrók og flísum á gólfi. Í innréttingu er ofn, helluborð og háfur. (Amerískur ísskápur). Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Baðherbergi var gert upp 2024, nýjar veggflísar, upphengt klósett og walk-in sturta, ásamt vaskaborði með marmara og lausum skáp. Loftgluggi sem auðvelt er að opna og birtir upp herbergið. Mögulegt að stækka baðherbergi með opnun inn í fataherbergi inn af svefnherbergi.
Svefnherbergi nr. 3 (hjónaherbergi) er mjög rúmgott með parketi á gólfi og fataskáp. Þaðan er innangengt í lítið
fataherbergi.Svefnherbergi nr. 4 er mjög rúmgott með parketi á gólfi. Var áður
tvö herbergi sem opnað var á milli til stækkunar.
Parket á efri hæð var pússað upp og olíuborið 2024.
Aukaíbúð á jarðhæð:Forstofa er með flísum og fatahengi.
Svefnherbergi nr. 5 er með parketi á gólfi.
Fataherbergi / geymsla er inn af svefnherbergi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Innrétting og sturtuklefi. Tengi fyrir þvottavél er inni á baðherbergi.
Eldhús og stofa eru í björtu og vel skipulögðu rými með parketi á gólfum og hvítri Ikea eldhúsinnréttingu.
Nýjar hurðar á svefnherbergi og stofu.
Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2026 er kr. 191.500.000,-
Verð kr. 189.000.000,-