Föstudagur 28. ágúst
Fasteignaleitin
Skráð 5. sept. 2025

Norðurbrún 22

ParhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
281.9 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
179.500.000 kr.
Fermetraverð
636.751 kr./m2
Fasteignamat
162.550.000 kr.
Brunabótamat
122.300.000 kr.
Mynd af Agnar Agnarsson
Agnar Agnarsson
Löggiltur Fasteignasali
Byggt 1968
Garður
Svalir
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2017628
Landnúmer
104196
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
endurnýjað að hluta
Raflagnir
endurnýjað að mestu
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
nýtt fyrir utan einn glugga í studioíbúð
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suðursvalir
Lóð
100
Upphitun
Danfoss / gólfhiti að hluta
Inngangur
Margir inngangar
Domusnova, Ingunn Björg og Agnar kynna glæsilegt parhús á tveimur hæðum með aukaíbúð. Mögulegt er að bæta við annari íbúð á jarðhæð. Húsið hefur nýlega verið endurnýjað að mestu. Um er ræða rúmgott og vel skipulagt 281.9 fm parhús á fallegum útsýnisstað við Norðurbrún 22. Húsið stendur í enda götunnar. Fallegt útsýni er af efri hæð til sjávar.

EIGNIN GETUR VERIÐ LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ UNDIRRITUN KAUPSAMNINGS.

Eftirtaldir hlutir hafa verið endurnýjaðir af fyrri eigendum að sögn seljanda á s.l. ári:


Húsið:
  • Þak endurnýjað, borðaklæðning og innraloft. 
  • Gluggar og gler endurnýjað í öllu húsinu. Gluggar stækkaðir í einu rými á neðri hæð.
  • Allar útihurðar endunýjaðar.
  • Sólskáli byggður ( sem ekki er inn í fermetratölu hússins ).
  • Hús málað að utan og innan.
  • Tröppur steyptar, hurð bætt við garðmegin inn á neðri hæð.
Innanhúss:
  • Eldhúsinnrétting á efri hæð endurnýjuð ásamt tækjum.
  • Aðalbaðherbergi endurnýjað, flísar og tæki.
  • Gólfefni endurnýjuð í öllum rýmum. 
  • Rafmagn og tenglar á efri hæð endurnýjað ásamt rafmagnstöflum, sett innfelld lýsing í loft í stofu og eldhús á efri hæð. 
Stúdíóíbúð:
  • Ný eldhúsinnrétting, ásamt tækjum.
  • Ný gólfefni á alrými. 

Skipulag neðri hæðar:
Komið er inn í flísalagða forstofu og þaðan inn í hol.  Úr holi er tréstigi uppá efri hæð. Einnig er innangengt í auka íbúðir úr holi.
Rúmgóð studíoíbúð með sérinngangi er við hlið aðalinngangs. Skipulag hennar er eftirfarandi: Forstofa, opið rými við eldhús / stofu / svefnherbergi.  Falleg grá eldhúsinnrétting er í rýminu með helluborði, bakaraofni og tengi fyrir uppþvottavél. Mjög fallegt og vandað eikarparket á gólfi alrýmis. Baðherbergi með sturtu, vask og salerni. Flísalagt gólf og veggir.
Tvö önnur rúmgóð herbergi (mögulegt að útbúa tveggja herbergja íbúð) eru einnig á jarðhæð. Lagnir eru til staðar fyrir baðherbergi og eldhús. Sérinngangur er í þetta rými frá garði bakvið húsið.
Parket er á gólfi á öðru herberginu í þessu rými, málað gólf á hinu herberginu.
Bílskúr er innbyggður á neðri hæð með nýrri raffdrifinni bílskúrshurð.

Skipulag efri hæðar:
Á efri hæð er alrými, rúmgóð stofa, úr stofu er gengið niður í fallega sólskála með útgengi út í garð sem snýr til suðurs, borðstofa er samliggjandi með stofu og inngang í eldhús. Stórt og rúmgott eldhús með nýrri hvítri eldhúsinnréttingu, mikið skápapláss, tveir bakaraofnar, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Glæsilegt útsýni til norðurs að hafi og  í átt að Esjunni.
Herbergisgangur með þremur svefnherbergjum, úr hjónaherbergi er útgengt út í garð.
Baðherbergi sem flísalagt er í hólf og gólf. Walk inn sturta, falleg dökk innrétting með skúffum undir borði, speglaskápum á vegg og háskáp, hanklæðaofn, upphengt salefrni. Fallegar flísar á gólfi og veggjum. 
Mjög vandað og fallegt viðarparkert er á öllum rýmum efri hæðar fyrir utan eldhús og baðherbergi. Gólfhiti er í á aðalrými efri hæðar en hefðbundið ofnakerfi í svefnherbergjum.

Ath!  Húsið er ekki skv. upprunalegu skipulagi. Myndir með húsgögnum inn á eru tölvuteiknaðar.



Nánari upplýsingar veita:
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir,  löggiltur fasteignasali / S: 856 3566 / ingunn@domusnova.is
Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.8201002 / agnar@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
29/09/2025148.250.000 kr.187.000.000 kr.281.9 m2663.355 kr.
29/03/2023123.400.000 kr.127.500.000 kr.281.9 m2452.288 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (46)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kjarrvegur 4
Bílskúr
Opið hús:01. sept. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Kjarrvegur 4
Kjarrvegur 4
108 Reykjavík
237.7 m2
Raðhús
714
694 þ.kr./m2
164.900.000 kr.
Skoða eignina Eskivellir 1
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Eskivellir 1
Eskivellir 1
221 Hafnarfjörður
131.2 m2
Fjölbýlishús
423
745 þ.kr./m2
97.800.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 41 endaraðhús
Bílskúr
Opið hús:30. ágúst kl 14:30-15:00
Vorbraut 41 endaraðhús
210 Garðabær
228.3 m2
Raðhús
523
1003 þ.kr./m2
229.000.000 kr.
Skoða eignina Ljósvallagata 30
Kjallaraíbúð
Ljósvallagata 30
101 Reykjavík
74.4 m2
Fjölbýlishús
312
845 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin