Berglind Hólm lgfs og RE/MAX kynnir: ' Hringdu núna og bókaðu skoðun
Glæsilegt endaraðhús á útsýnislóð í leirvogstungunni. Húsið stendur efst í hverfinu er og því ekkert hús fyrir aftan það og nær það því útsýni bæði til vesturs yfir hverfið og út á fjörðinn og einnig til austurs í átt að Esjunni. Húsið er sérlega gott fjölskylduhús með 5 svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum ( annað með baðkari og hitt með sturtu), stóru alrými með eldhúsi, borðstofu og setustofu, góðu þvottaherbergi, geymslu og bílskúr. Lóð er frágengin með hellulögðu bílaplani með snjóbræðslu, garði með 120 fm timburverönd, skjólveggjum, grasi og útigeymslu. Nýr vegur hefur verið lagður frá Leirvogstungunni yfir að skólanum og íþróttamiðstöðinni í Varmá. Stutt er í einstaka náttúru.
Fasteignamat ársins 2024: 133.450.000 kr
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is
Nánari lýsing eignar:Keyrt er upp á hellulagt bílaplan sem rúmar allt að fjóra bíla. Snjóbræðsla er í planinu. Sunnan megin við húsið er timburverönd með góðum skjólveggjum og á bak við húsið er bæði verönd og gras. Einnig er góður geymsluskúr á lóðinni. Búið er að reysa skjólvegg á milli lóðanna á húsi nr.85 og 87.
Nánari lýsing húss:
Jarðhæð:
Forstofa: Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og hvítum opnum fataskáp.
Bílskúr: Inn af forstofunni er gengið inn í bílskúrinn. Bílskúrinn er með lökkuðu gólfi og parketlagt að hluta. Sjálfvirkum bílskúrshurðaopnara. Bílskúrinn er um 25 fm.
Baðherbergi nr.1: Á hæðinni er baðherbergi með glugga. Baðkar er á baðherberginu, falleg innrétting undir vaski sem er með tveimur blöndunartækjum. Speglaskápur er á vegg fyrir ofan vask. Ljósgráar 60 x 60 cm flísar eru á gólfi og á veggjum.
3 x barnaherbergi: Á hæðinni eru þrjú góð barnaherbergi. Öll herbergin eru með fallegur harðparketi á gólfi.
Þvottaherbergi: Þvottaherbergi er með vinnuborði, vinnuvaski og góðum opnanlegum glugga. Hægt er að ganga út í garðinn á ganginum við hliðina á þvottaherberginu. Flísar eru á gólfi.
Geymsla: Góð geymsla með glugga er inn af þvottaherberginu.
Efrihæð:
Alrými: Gengið er upp steyptan stiga með fallegri klæðningu á veggjum sem gefur skemmtilegan svip á rýmið.
Eldhús, borðstofa og setustofa: Þegar komið er upp á efri hæðina er komið inn í stórt alrými sem rúmar stórt eldhús, borðstofu og setustofu. Fallegt harðparket er á öllu rýminu.
Hvít innrétting með miklu skápaplássi er í vinkil + eyja. Skápar og skúffur eru með hvítum háglans framhliðum og fallegri grárri borðplötu. Glæsilegt útsýni er frá eldhúsinu vestur yfir sjóinn og til Reykjavíkur.
Borðstofa og setustofa eru saman í opnu rými með glæsilegu útsýni til vesturs. Gengið er út á stórar vestursvalir frá stofurýminu.
Baðherbergi nr.2: Annað baðherbergi er á hæðinni. Fallegar 60 x 60 cm flísar eru veggjum og á gólfi. Góð innrétting er undir vaski og speglaskápur er á vegg fyrir ofan vaskinn. Stór sturta með góðu aðgengi og glervegg er beint á gólf við opnanlegan glugga. Handklæðaofn er á vegg.
Barnaherbergi nr.4: Búið er að útbúa fjórða barnaherbergið á hæðinni við hliðina á setustofunni. Herbergið er gott með harðparketi á gólfi. Hægt er að opna það aftur ef nýir eigendur kjósa svo.
Hjónaherbergi: Hjónaherbergið er rúmgott með harðaparketi á gólfi og góðu fataherbergi með opnum skápum, hillum og skúffum.
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is