Föstudagur 6. júní
Fasteignaleitin
Skráð 31. maí 2025
Deila eign
Deila

Urðarbrunnur 60

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarholt og Úlfarsárdalur-113
291.3 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
205.500.000 kr.
Fermetraverð
705.458 kr./m2
Fasteignamat
172.950.000 kr.
Brunabótamat
163.950.000 kr.
Mynd af Sölvi Þór Sævarsson
Sölvi Þór Sævarsson
löggiltur fasteignasali
Byggt 2010
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2314547
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upphaflegar lagnir
Raflagnir
Upphaflegar rafrlagnir
Frárennslislagnir
Upphaflegar lagnir
Gluggar / Gler
Upphaflegir gluggar
Þak
Upphafleg þak
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Tvennar svalir í suður og suðvestur
Lóð
100
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
NÝTT Í SÖLU - Urðarbrunnur 60, 113 Reykjavík

Domusnova fasteignasala og Sölvi Sævarsson lgf, kynna í einkasölu: Vel skipulagt, reisulegt og bjart 6 herbergja einbýlishús á góðum útsýnisstað við Urðarbrunn í Úlfarsárdal. Stórar stofur á neðri og efri hæð, fjögur stór svefnherbergi, þrjú baðhergi með vönduðum flísum og innréttingum og tvennar svalir með góðu útsýni. Steypt innkeyrsla, 3-4 bílastæði á lóð og góður garður í suðvestur sem afmarkast með steyptum stoðveggjum sem eru í kringum lóðina að mestu. 

EIGNIN VERÐUR EKKI SÝND Í OPNU HÚSI - BÓKIÐ TÍMA Í EINKASKOÐUN.
Allar nánari uppl.  veitir Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali í s. 618-0064 eða solvi@domusnova.is 


Húsið er staðsett neðan við götu með inngang á efri hæð þar sem er anddyri, bílskúr, gott hol, snyrting og rúmgott 15 fm barnaherbergi. Nokkrar tröppur eru niður í eldhús og stofur þar sem er mikil lofthæð og stórir gluggar í útsýnisátt í suðvestur. Rennihurð er úr stofurými út á sólpall.
Efri hæð húsins skiptist í 24,5 fm samverurými/ sjónvarpshol með miklu útsýni og útgengt á góðar útsýnissvalir, tvö stór svefnherbergi 15 og 20,1 fm eru á hæðinni, baðherbergi, ásamt stóru 22 fm hjónaherbergi með öðru10 fm baðherbergi þar inn af með walk inn sturtu og hurð út á svalir.
  • Hjónaherbergi og baðherbergi endurnýjað 2024.
  • Innihurðar og parket endurnýjað 2024. 
  • Bílaplan og garðveggir steyptir 2024.
  • Hús málað að innan 2024.
  • Gólfhitakerfi er í öllu húsinu.

Eignin er í heild skráð 291,3 m² skv. Hms, þar af er íbúðarhlutinn 260,8 m²og bílskúr 30,5 m².    Fasteignamat ársins 2025 er 172.950.000 kr

Nánari lýsing:
Aðalhæð - innkomuhæð:
Anddyri/hol: Rúmgott anddyri með flísum á gólfi og hvítum fataskápum. Innrétting/upphengdur skápur á vegg í holi sem fylgir eigninni. Innangengt er í bílskúr úr anddyri.
Baðherbergi: Veggir eru flísalagðir vönduðum flísum að lofti. Flísar á gólfi. Innfelld tæki í vegg við sturtu og handlaug. Steinn á innréttingu með vaskborði og speglaskápur ofan við handlaug. Upphengt salerni og glerþil við sturtu. Gluggi á baðherbergi.
Barnaherbergi 1: Stórt 15 fm herbergi á vinstri hönd inn af anddyri með harðparketi á gólfi. Athugið að ekki er mynd af herberginu í auglýsingu.
Hol: Harðparket á gólfi, úrr holi er hurð niður af stiga út á sólpall í suðaustur.
Úr holi/ miðjurými eru nokkur þrep niður í alrými þar sem er  eldhús og stofurými þar sem lofthæð er mikil og gefur rýminu fallegt og glæsilegt yfirbragð.
Eldhús: Eldhúsinnrétting er hvít vegleg með miklu og góðu skápaplássi. Granítsteinn á borðum, undirfelldur vaskur og niðurfellt helluborð í steinplötu í eyju. Eyjan er breið (c.a 130 cm) með skápum að borðstofurými. Tveir bakarofnar og innfelldur ísskápur í innréttingu ásamt innbyggðri uppþvottavél. 
Stofa og borðstofa: Rúmgóð borðstofa við eldhús og gott stofurými með góðu útsýni til suðvesturs. Afar glæsilegt útsýni yfir höfuðborgina, til fjalla og víðar. Renihurð úr stofu út á verönd/sólpall Góð lofthæð í alrými og innfelld lýsing í loftum. Horngluggar í alrými gefa góðu birtu inn í rýmið. Arinn á útvegg milli glugga í stofurými.
Gengið er um teppalagðan stiga upp á efri hæð hússins. Gluggi í stiga gefur góða birtu inn í húsið og miðjurými efri hæðar.

Efri hæð:
Sjónvarpshol: Rúmgott 24,5 fm fjölskyldu og samverurými með sjóvarpsskáp milli veggja sem er hluti af innréttingum. harðparketi á gólfi. Útgengt er um rennihurð á svalir og er mikið útsýni í suðvestur yfir borgina úr sjónvarpsrými og af svölum.
Hjónaherbergi: Er rúmgott með vönduðu teppi á gólfi. Fataskápar eru í svörtum lit með rennihurðum og er stót baðherbergi inn af hjónaherbergi með hurð út á svalir.
Baðherbergi inn af hjónaherbergi: Glæsilega vandaðar 60x60 flísar á veggjum og gólfi frá Agli Árnasyni. Innrétting er vegleg úr steini með handlaug og innfelldum blöndunartækjum  Speglaskápur ofan við handlaug með lýsingu á milli hurða og undir skápum. Walk inn sturta með glerþili og innfelldum blöndunartækjum. Svartur handklæðaofn á vegg og hurð út á svalir.
Barnaherbergi 2: Stórt rúmlega 20 fm svefnherbergi með góðu skápa- og hillurými við inngang í herbergið. Svefnrými er fyrir innan skáparými. Harðparket á gólfi. Hurð út á svalir sem snúa að kvöldsól í vestur.
Þvottahús: Virkilega rúmgott þar sem búið er að breyta frá teikningu og sameina geymslu og þvottarými í eitt gott 13,5 fm rými. Gott vinnurými og borðpláss og rými fyrir tvær þvottavélar og tvo þurkara. Flísar á gólfi í þvottahúsi.  Möguleiki væri að minnka þvottahús og koma fyrir fimmta herberginu í húsinu.  Myndir af þvottahúsi vantar í auglýsingu. 
Baðherbergi 3/ snyrting  á efri hæð: Veggir eru flísalagðir vönduðum flísum að lofti. Flísar á gólfi. Innfelld tæki í vegg við sturtu og handlaug. Steinn á innréttingu með vaskborði og speglaskápur ofan við handlaug. Upphengt salerni og glerþil við sturtu. Gluggi á baðherbergi.
Barnaherbergi 3: Stórt 15 fm herbergi á hægri hönd þegar komið er upp stiga á efri hæð. Fataskápur í herbergi og harðparket á gólfi. 

Innréttingar og gólfefni - Innihurðar eru hvítar nýlegar endurnýjaðar árið 2024. Innréttingar er sérsmíðaðar vandaðar sprautulakkaðar í hvítum lit. Steinplötur á eldhús og baðinnréttingum. Gólfefni er vandað Pergo harðparket frá Agli Árnasyni. Vandaðar flísar á baðherbergjum frá Agli Árnasyni og Álfaborg.

Bílskúr: Innangengt úr anddyri í 30,5 fm bílskúr. Fataskápar á vegg í bílskúr með góðu hirsluplássi. Skolvaskur í bílskúr og möguleiki að hafa þvottahús innan bílskúrs. Epoxy á gólfi

Nánasta umhverfi:
Staðsetning eignarinnar er afar góð á eftirsóknaverðum stað í Úlfarsárdal. Stutt er í alla þjónustu og verslarnir, Dalslaug. skóla, leikskóla. Stutt fallegar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni.  

Nánari upplýsingar veitir:
Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali. í síma 618-0064 eða solvi@domusnova.is 
 – eða skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 79.900 kr.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.
 
 
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
08/05/201767.650.000 kr.93.000.000 kr.291.3 m2319.258 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 2010
30.5 m2
Fasteignanúmer
2314547
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
11.250.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Gerðhamrar 23
3D Sýn
Skoða eignina Gerðhamrar 23
Gerðhamrar 23
112 Reykjavík
295.5 m2
Einbýlishús
1125
761 þ.kr./m2
225.000.000 kr.
Skoða eignina Brekkubær 4
Skoða eignina Brekkubær 4
Brekkubær 4
110 Reykjavík
305.6 m2
Fjölbýlishús
925
605 þ.kr./m2
185.000.000 kr.
Skoða eignina Seiðakvísl 33
Bílskúr
Skoða eignina Seiðakvísl 33
Seiðakvísl 33
110 Reykjavík
236.3 m2
Einbýlishús
614
813 þ.kr./m2
192.000.000 kr.
Skoða eignina Vesturbrún 12
Bílskúr
Skoða eignina Vesturbrún 12
Vesturbrún 12
104 Reykjavík
276.5 m2
Hæð
715
778 þ.kr./m2
215.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin