ALLT fasteignasala kynnir Ránarvellir 17, 4ra herbergja raðhús við Ránarvelli 17 í Keflavík, 230 Reykjanesbæ. Eignin telur 110 fm og er vel staðsett í vinsælu hverfi við Heiðarskóla og opið svæði, stutt er upp á Reykjanesbraut. Spennandi hús á góðum stað í Reykjanesbæ.
Eignin er ný máluð og laus við kaupsamning! ** Nýlegur gluggi í stofu.
** Nýlegt parket.
** Nýleg útidyrahurð.
** Sæktu öll gögn hér **Nánari upplýsingar veitir/veita:
Elín Frímannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8674885, tölvupóstur elin@allt.is.Haukur Andreasson Löggiltur fasteignsali og lögfræðingur, tölvupóstur haukur@allt.is
Nánari lýsing eignar:Forstofa hefur flísar á gólfi og þar er góður skápur.
Stofa er parketlögð
Eldhús með parket á gólfi, þar er hvít innrétting, eldavél og vifta.
Hjónaherbergi er rúmgott og hefur parket á gólfi og stóran fataskáp.
Barnaherbergi I hefur parket á gólfi og rúmgóðan skáp.
Barnaherbergi II hefur parket á gólfi
Baðherbergi hvít innrétting, nýlegur sturtuklefi og flísalagt gólf.
Þvottahús rúmgott og hefur málað gólf. (ath ekki mynd af því)
Tengirými þar sem hitaveitugrind er hefur hurð út í bakgarð. Gott hllupláss þar.
Steypt bílaplan, ásamt sólpalli að framan, lóð tyrfð. Góður afgirtur bakgarður.
Góð eign á frábærum stað, mjög stutt frá grunnskóla og leikskóla.
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.