Sunnudagur 16. ágúst
Fasteignaleitin
Opið hús:19. ágúst kl 17:00-17:30
Skráð 16. ágúst 2026

Kjalarland 33

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
215.4 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
192.500.000 kr.
Fermetraverð
893.686 kr./m2
Brunabótamat
100.530.000 kr.
Byggt 1970
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
20376151
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Eignamiðlun kynnir:

Mjög vel staðsett og mikið endurnýjað 215,4 fm pallaraðhús, þar af 20,2 fm bílskúr. Eignin er með fimm svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum auk gestasnyrtingar, stórum suðurgarði og bílastæðum við húsið.

Húsið skiptist þannig: Á miðpalli er forstofa, snyrting, opið eldhús og borðstofa. Á efsta palli er stór stofa með arni. Á neðri palli er gangur, hjónaherbergi, þrjú barnaherbergi og baðherbergi. Á neðsta palli er síðan gott herbergi, þvottahús, nýlegt baðherbergi og sérinngangur.

**Sækja söluyfirlit**

Nánari lýsing
Komið er inn í anddyri og inn af því er endurnýjuð gestasnyrting. Inn af anddyri tekur við opið og bjart rými sem samanstendur af borðstofu og opnu eldhúsi. Opið er upp í stofu og niður á svefnherbergis pall úr þessu rými.

Eldhúsið er rúmgott með vönduðum tækjum og innbyggðri uppþvottavél. Eldhúsið hefur verið endurnýjað að hluta á síðustu árum og þar hefur meðal annars verið komið fyrir veglegri marmara eyju.
Stofan er meðfram suðurhlið hússins og er björt með góðri lofthæð og arni. Svalir eru til suðurs og gott útsýni. Allir gluggar hússins hafa verið endurnýjaðir, ásamt svalahurðum og garðhurðum.

Á svefnherbergis palli eru fjögur svefnherbergi sem snúa út í garð. Skápar eru í þremur herbergjum og auðvelt er að sameina tvö þeirra. Gengið er út í garð úr hjónaherbergi. Nýlegt baðherbergi er einnig á þessum palli.

Á neðsta palli er rúmgott svefnherbergi með skápum. Þar er einnig rúmgott þvottahús með innréttingu og sturtu. Sérinngangur er inn á þennan pall.

Bílskúrinn er í lengju austan við húsið og er með heitu og köldu vatni. Bílskúrshurðir voru endurnýjaðar árið 2025, rafmagn endurnýjað og komið fyrir hleðslustöð fyrir rafbíl.

Húsið hefur verið mikið endurnýjað á síðustu árum. Meðal annars hefur verið farið í þak, þakrennur og múrviðgerðir á öllu húsinu, auk þess sem ný handrið hafa verið sett upp á svölum og fyrir framan hús. Allir gluggar hafa verið endurnýjaðir. Einnig hefur loftaklæðning, lýsing, gólfefni, hurðir, þvottahús, , baðherbergi, gestasnyrting og eldhús verið endurnýjað. Raflagnir og rafmagnstöflur hafa verið endurnýjaðar að stórum hluta. Á neðsta palli er gott og rúmgott skápapláss og hafa skápar þar einnig verið endurnýjaðir á síðustu árum.

Lóðin hefur einnig verið mikið endurbætt. Stór timburverönd hefur verið byggð til suðurs ásamt rúmgóðum geymsluskúr. Á pallinum er heitur pottur, kaldur pottur og útisturta. Skólp- og frárennslislagnir í garði hafa verið endurnýjaðir og svæðið fyrir framan húsið hefur jafnframt verið endurhannað og snyrt.

Nánari upplýsingar veita:
Kjartan Hallgeirsson - Löggiltur fasteignasali í síma 824-9093 eða kjartan@eignamidlun.is
Lilja Guðmundsdóttir - Löggiltur fasteignasali í síma 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Stigahlíð 10
Efsta hæð
Opið hús:20. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Stigahlíð 10
Stigahlíð 10
105 Reykjavík
83 m2
Fjölbýlishús
312
842 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Gerðarbrunnur 20
Opið hús:18. ágúst kl 12:00-12:30
Gerðarbrunnur 20
113 Reykjavík
211.7 m2
Raðhús
524
638 þ.kr./m2
135.000.000 kr.
Skoða eignina Keldugata 4
Bílskúr
Opið hús:17. ágúst kl 17:00-17:45
Skoða eignina Keldugata 4
Keldugata 4
210 Garðabær
224.4 m2
Raðhús
635
Fasteignamat 168.000.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Keldugata 6
Bílskúr
Opið hús:17. ágúst kl 17:00-17:45
Skoða eignina Keldugata 6
Keldugata 6
210 Garðabær
225.3 m2
Raðhús
724
Fasteignamat 163.350.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin