Sunnudagur 16. ágúst
Fasteignaleitin
Opið hús:17. ágúst kl 17:00-17:45
Skráð 2. maí 2025

Keldugata 6

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
225.3 m2
7 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
163.350.000 kr.
Byggt 2025
Garður
Svalir
Pallur
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2508695
Landnúmer
229652
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
nýjar
Raflagnir
Í lagi
Frárennslislagnir
nýjar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
GARÐATORG EIGNAMIÐLUN kynnir til sölu fallegt og vel skipulagt raðhús á pöllum á þessum vinsæla og eftirsótta stað í Garðabæ. Þetta er vandað og reisulegt hús með einstöku útsýni yfir Urriðavatn. Möguleiki er á 3-5 svefnherbergjum og 2-3 baðherbergjum/snyrtingum.

Bókið skoðun: Unnur s:8660507 eða unnur@gardatorg.is

Innra skipulag: anddyri, eldhús og borðstofa, rúmgóð stofa, 3–5 svefnherbergi, 2-3 baðherbergi/snyrtingar, þvottahús, geymslurými og innbyggður bílskúr.

Komið er inn í rúmgóða forstofu. Þar er herbergi og snyrting.
Eldhús og borðstofa eru á sama palli í opnu, björtu og fallegu rými. Einstaklega falleg eldhúsinnrétting með góðu vinnu- og skápaplássi, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, ofni í vinnuhæð, örbylgjuofni og eldhúsviftu í helluborði. Flest allt Miele-tæki frá Eirvík.
Stofan er falleg og stór með mikilli lofthæð sem gefur rýminu einstakan svip. Fallegir gluggar og gengið út um rennihurð á rúmgóðar suðursvalir með glæsilegu útsýni.
Stórt svefnherbergi með sér baðherbergi er á efsta pallinum. Þar er möguleiki á að hafa tvö herbergi.
Á jarðhæð er svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Rúmgóður bílskúr og geymslurými þar sem er innangengt í íbúðarhúsnæði.

*Vandaðar ítalskar innréttingar í eldhúsi, baðherbergjum, fataskápum og þvottahúsi frá  Scavolini-Regola.
*Gólfefni og flísar eru frá MOOD INTERIORS.
*Tæki frá Eirvík.

Góð aðkoma er að húsinu, búið er að helluleggja bílaplan fyrir framan bílskúr og gert er ráð fyrir hitalögnum. Húsið er byggt á pöllum sem skapar opið og skemmtilegt skipulag með góðri tengingu milli rýma. Samverurýmin eru björt og rúmgóð með stórum gluggum sem snúa vel við sólu og bjóða upp á fallegt útsýni. Gólfhiti er í íbúðarrými og tvívirkt loftræstikerfi sem er innsteypt í loftplötur með inn- og útloftun.  Þak er steypt að hluta og að hluta úr timbursperrum. Húsið er skráð 225,3fm, þar af 195,3fm íbúðarrými og 30fm innbyggður bílskúr. Auk þess er um 14 fm geymslurými við hlið bílskúrs sem ekki telst með í skráðri fermetratölu. Innangengt er úr bílskúr um þetta rými.

Urriðaholt er rólegt, eftirsótt og fjölskylduvænt hverfi í Garðabæ þar sem náttúra og mannlíf fara vel saman. Göngufæri er í Urriðaskóla, leikskóla, útivistarsvæði, golfvöll og náttúruperlur á borð við Urriðavatn og Heiðmörk. Urriðaholt er fyrsta hverfi landsins sem hlotið hefur vistvottun samkvæmt BREEAM Communities.

Eignin er nánast fullbúin og verið er að leggja lokahönd á framkvæmdir innan- og utanhúss. Hér er um að ræða eign þar sem mikið fæst fyrir verðið. Þegar horft er til stærðar, gæða, frágangs og staðsetningar er erfitt að finna sambærilega eign á höfuðborgarsvæðinu. Sjón er sannarlega sögu ríkari.

**Skipti á annarri eign koma til greina.

**Húsgögn voru sett inn á nokkrar myndir með aðstoð gervigreindar.  Þetta er gert til að aðstoða áhugasama kaupendur við að sjá fyrir sér möguleika sem húsnæðið býður upp á.

Nánari upplýsingar veita:
Unnur Ýr Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, s: 8660507 eða unnur@gardatorg.is
Sigurður Tyrfingsson, löggiltur fasteignasali og húsasmíðameistari, s: 898 3708 eða sigurdur@gardatorg.is



 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2025
30 m2
Fasteignanúmer
2508695
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.

Myndir (70)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Keldugata 4
Bílskúr
Opið hús:17. ágúst kl 17:00-17:45
Skoða eignina Keldugata 4
Keldugata 4
210 Garðabær
224.4 m2
Raðhús
635
Fasteignamat 168.000.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Maríugata 27
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Maríugata 27
Maríugata 27
210 Garðabær
240.5 m2
Raðhús
614
761 þ.kr./m2
183.000.000 kr.
Skoða eignina Vindakór 10-12
Bílastæði
Hleðslustöð
Skoða eignina Vindakór 10-12
Vindakór 10-12
203 Kópavogur
116.8 m2
Fjölbýlishús
413
758 þ.kr./m2
88.500.000 kr.
Skoða eignina Dalbrekka 14
Skoða eignina Dalbrekka 14
Dalbrekka 14
200 Kópavogur
67 m2
Fjölbýlishús
211
1007 þ.kr./m2
67.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin