Vorum að fá í sölu fallega og mikið endurnýjaða 2ja herbergja 61 fm endaíbúð á 3.hæð með dásamlegu útsýni. Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin, búið er að skipta um gler í allri íbúðinni og nýlega búið að fara í viðgerð á þaki. Góð bílastæði eru fyrir framan húsið og er búið að merkja þau Leifsgötu 10. Stærðir samkvæmt HMS: Íbúð: 57,1 fm Geymsla: 3,5 fm
Allar nánari upplýsingar um eignina & skoðanir veitir: Halldór Freyr Löggiltur fasteignasali S:6932916 eða halldor@fastgardur.isLýsing:Komið er inn í
rúmgóðan gang þar sem er gengið inn í allar vistaverur íbúðarinnar.
Eldhús með fallegri innréttingu, innbyggðir uppþvottavél og veggfestu borði.
Svefnherbergi með góðum fataskáp með hvítum háglans rennihurðum.
Flísalagt baðherbergi með hvítri innréttingu, sturtuklefa með gler skilrúmi, handklæðaofn og upphengt salerni.
Björt og rúmgóð stofa með fallegu útsýni til austurs.
Sérgeymsla er í rislofti og er hún mun stærri en fm tölu sýna þar sem hún er undir súð. Í kjallara er sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla.
Gólfefni: 10mm harðparket frá Birgison og flísar á baðherbergi.
Upplýsingar:Eignin hefur verið endurnýjuð mikið að innan svo sem eldhús, baðherbergi, hurðar og gólfefni.
Einnig hefur húsið fengið gott viðhald að utan þar sem búið er að skipta um gler í íbúðinni og þak lagfært, þessar framkvæmdir voru gerðar 2020.
Árið 2021 var húsið múrviðgert að utan.
Stigagangur málaður 2021
Dyrasímar með myndavél 2022
Þak málað árið 2024
Staðsetning er mjög góð í nánd við miðbæinn og alla almenna þjónustu. Þetta er eign sem vert er að skoða.