Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala Akureyri kynna:
Vel byggt og rúmgott einbýlishús með mikla möguleika að Tungusíðu 7, 603 Akureyri
Stærðarskipting eignarinnar: Efri hæð er samtals 151,6 fm. Hárgreiðslustofa er 27,2 fm. Gangur, verkstæði og geymsla er 44,1 fm. Skrifstofa og inngangur neðri hæðar er 24,7 fm. Sorpgeymsla er 1,8 fm. Geymsluskúr úti á lóð (norðurhlið) er u.þ.b. 7 fm.
Lýsing: Gengið er frá götu upp tröppur að aðalinngangi hússins.
Komið er inn í flísalagða forstofu með fatahengi og inn af henni er lítið gestasalerni með wc og vask. Flísar á báðum þessum rýmum. Hol innaf forstofu er flísalagt og tengir saman í miðju aðalrýmin og svefnherbergisálmu. Svefnherbergin eru þrjú, öll ágætlega rúmgóð, fataskápar í öllum herbergjum og sérstaklega stór og veglegur skápur í hjónaherbergi á heilum vegg með snyrtiborði í miðju og spegli. Útgengt er úr hjónaherbeginu (suðvesturhorni) út á veröndina. Svefnherbergin og gangur eru parketlögð. Baðherbergið er mjög rúmgott með hornbaðkari, stakstæðri sturtu, innréttingu með góðri hirslu utan um vask og spegil, wc og flísalagt á gólfi og hluta veggja. Gegnið er úr holi einnig út á verönd. Alrými er á hækkuðum palli (tvö þrep) og rúmar borðstofu/stofu í góðu rými með kamínu (með útsogsröri) og síðan er eldhúsið samtengt í sér rými með rúmgóðri innréttingu, búr/þvottahús með hirslum er innaf eldhúsinu. Eldhúskrókur með pláss fyrir matarborð og stór búrskápur á heilum vegg. Parket er á borðstofu/stofu og eldhúsið er flísalagt.
Gengið er niður á neðri hæð hússins um hringstiga innan húss en hægt er einnig að fara inn utanfrá af bílaplani, bæði inn í forstofu og einnig gengið beint inn á hárgreiðslustofu. Hárgreiðslustofan var útfærð í fremri hluta bílskúrs, sett í aðra bílskúrshurðina nýtt timburverk og gler, hin bílskúrshurðin er enn til staðar og í raun nokkuð auðvelt að virkja hana aftur. Hárgreiðslustofuhlutinn er um 27 fermetrar, innaf henni er gangur sem tengir saman uppstoppunarverkstæði, geymslu og miðrými við hringstigann niður og forstofu út á neðri hæð. Parket er á góflum skrifstofu, gangs og hárgreiðslustofu, verkstæðið og geymslan með steyptum máluðum gólfum og forstofa niðri með flísum.
Hárgreiðslustofan og uppstoppunarverkstæðið niðri er búið með mjög öflugu loftræstikerfi. Sett var einnig upp sterkara rafmagn með iðnaðaröryggi þegar hárgreiðslustofan var sett upp, sem var á vormánuðum 1998.
Undir stiga úti er geymsla (9,4 fm) sem einnig er inntaksrými hússins.
Möguleikar fyrir nýtingu hússins eru margvíslegir, hægt að vera áfram með rekstur á neðri hæð hússins, einnig hægt að útfæra aukaíbúð með sérinngangi og hafa samt fínar geymslur innst á neðrihæð enda er aukahurð á norðurhlið inn á núverandi uppstoppunarverkstæði, svo dæmi séu tekin.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.