Þriðjudagur 18. ágúst
Fasteignaleitin
Opið hús:25. ágúst kl 16:45-17:45
Skráð 18. ágúst 2026

Nesbali 102

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Seltjarnarnes-170
279 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
208.500.000 kr.
Fermetraverð
747.312 kr./m2
Fasteignamat
182.950.000 kr.
Brunabótamat
141.250.000 kr.
HL
Hreiðar Levý Guðmundsson
löggiltur fasteignasali
Byggt 1982
Garður
Svalir
Pallur
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2068040
Landnúmer
117492
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Inngangur
Sérinngangur
Hreiðar Levý lögg. fasteignasali og Betri Stofan fasteignasala kynna fallegt, mikið endurnýjað og vel skipulagt 7 herbergja, 279 fm raðhús á pöllum með innbyggðum bílskúr að Nesbala 102, 170 Seltjarnarnesi.

Sérlega fallegt og vel staðsett fjölskylduhús með opnum og björtum samverurýmum, aukinni lofthæð, fallegum stórum gluggum og arni í neðri stofu. Svefnherbergin eru fimm talsins, þar af þrjú á efri palli og tvö á neðri palli hússins. Baðherbergi og eldhús hafa verið endurnýjuð á vandaðan og smekklegan hátt. Góð aðkoma er að húsinu með hellulögðu bílastæði fyrir þrjá bíla og uppsettri hleðslustöð fyrir rafbíl. Fallegur, aflokaður og girtur suðurgarður er bak við húsið. Eignin er staðsett á vinsælum, friðsælum og fjölskylduvænum stað á vestanverðu nesinu þar sem leik- og grunnskóli eru í göngufæri ásamt sundlaug Seltjarnarness, íþróttasvæði Gróttu, líkamsrækt, 9 holu golfvelli og einstökum útivistarsvæðum.

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða á hreidar@betristofan.is

Eignin hefur fengið gott viðhald á undanförnum árum:
- Rafmagn endurnýjað í öllu húsinu
- Rafmagnshleðslustöð sett upp
- Nýjar neysluvatnslagnir í öllu húsinu
- Baðherbergi endurnýjuð
- Eldhús endurnýjað
- Fataskápur í forstofu endurnýjaður
- Lýsing og kastarar endurnýjaðir
- Gólf lakkað / flotað og málað í kjallara
- Kjarnaborað fyrir lofttúðu í kjallara
- Gólfefni á efri svefnherbergishæð endurnýjuð

Eignin skiptist í:
Aðalhæð: Forstofa, alrými með samliggjandi eldhúsi og borðstofu, setustofa með arni.
Efri pallur: Hol með vinnuaðstöðu, þrjú svefnherbergi og baðherbergi.
Neðri pallur: Gangur, tvö svefnherbergi, snyrting, þvottahús, geymsla, tómstundarrými ásamt innangengum bílskúr.

Nánari lýsing:
Aðalhæð:
Forstofa: Flísalögð með upphengdum snögum og nýlegum fataskáp. Flísar á gólfi.
Alrými: Afar fallegt, opið og bjart rými með samliggjandi eldhúsi, borðstofu og stofu. Fallegir, stórir gluggar og aukin lofthæð gera rýmið tignarlegt og bjart. Gengið er úr alrými á efri og neðri palla hússins.
Eldhús: Falleg, ljós innrétting með miklu skápa- og vinnuplássi. Gegnheil eik er á borðplötum. Smeg gaseldavél er innbyggð í innréttingu, upphengdur háfur, innbyggð uppþvottavél ásamt plássi fyrir tvöfaldan ísskáp. Eldhúsið er opið og í góðu flæði við borðstofuna. Flísar gólfi.
Borðstofa: Mjög rúmgóð, björt og í beinni tengingu við eldhús og stofu. Flísar á gólfi.
Stofa: Gengið er niður þrjár tröppur úr borðstofu. Rúmgóð og björt stofa með arni og stórum glugga sem snýr út í garð. Útgengt er út í garð úr stofu. Parket á gólfi.

Efri pallur:
Hol: Opið og bjart hol með mikilli lofthæð og stórum þakglugga. Skrifstofuaðstöðu hefur verið komið fyrir í holinu. Gengið er inn í þrjú svefnherbergi og baðherbergi.
Svefnherbergi I (Hjónaherbergi): Rúmgott með fataskápum og útgengi á svalir.
Svefnherbergi II: Gott barnaherbergi með fataskáp.
Svefnherbergi III: Gott barnaherbergi með fataskáp.
Baðherbergi: Endurnýjað á einstaklega smekklegan hátt þar sem hönnun og gæði fara saman. Sérsmíðuð/svífandi innrétting með tvöföldum vaski og innbyggðum blöndunartækjum í vegg. Samfelldir speglaskápar yfir innréttingu. Rúmgóð „walk-in“ sturta með glervegg, innbyggðum tækjum, handklæðaofni og upphengt salerni. Terrazzo-flísar á gólfi og hvítar, lóðréttar veggflísar. Rýmið er bjart með hvíttuðu lofti og stórum þakglugga.

Neðri pallur:
Gangur: Tengir saman öll rými neðri pallsins.
Svefnherbergi IV: Rúmgott herbergi með fataskáp og útgengi út í garð.
Svefnherbergi V: Gott herbergi með fataskáp.
Snyrting/Gestasalerni: Upphengt salerni, handlaug, speglaskápur og fallegar terrazzo-flísar á gólfi.
Geymsla / Tómstundarrými: Afar rúmgott, gluggalaust rými með fjölbreytta nýtingarmöguleika (sjónvarpsherbergi, líkamsrækt o.fl.). Skráð sem tómstundarrými á teikningu. Búið er að kjarnabora fyrir lofttúðu og möguleiki er á að setja glugga á norðurhlið rýmisins.
Þvottahús: Gott vinnupláss með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara undir borðplötu með innbyggðum skolvaski og upphengdum hillum.
Geymsla: Inn af þvottahúsi með beinni tengingu inn í bílskúr.

Bílskúr: Innbyggður, 20,5 fm með innangengri tengingu við neðri pall.

Garður: Afgirtur og skjólsæll suðurgarður með viðarverönd, hellulagðri lægri verönd og nýlegri grasþöku.
Aðkoma: Húsið stendur í rólegum botnlanga. Hellulagt bílaplan fyrir allt að þrjá bíla með uppsettri hleðslustöð.

Umhverfi og staðsetning: Einstakt tækifæri til að eignast glæsilegt fjölskylduhús á eftirsóttum stað á Seltjarnarnesi. Hér býrð þú í rólegu og grónu umhverfi þar sem stórbrotin náttúra, fjölskrúðugt fuglalíf og fjaran eru í göngufæri. Fallegar göngu- og hjólaleiðir liggja út að Gróttu meðfram ströndinni með óskertu útsýni yfir Faxaflóa. Stutt er í 9 holu golfvöll hjá Golfklúbbi Seltjarnarness, íþróttamiðstöð og knattspyrnusvæði Gróttu, sundlaugina, líkamsrækt, leik- og grunnskóla ásamt verslunar- og þjónustukjarnanum á Eiðistorgi.

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson, löggiltur fasteignasali, í síma 661-6021 eða á netfangið hreidar@betristofan.is.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
29/03/201667.500.000 kr.68.000.000 kr.279 m2243.727 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (51)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Austurströnd 2
Opið hús:20. ágúst kl 16:30-17:00
0S6A0901.jpg
Skoða eignina Austurströnd 2
Austurströnd 2
170 Seltjarnarnes
79.7 m2
Fjölbýlishús
211
752 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Hagamelur 28
Skoða eignina Hagamelur 28
Hagamelur 28
107 Reykjavík
78.9 m2
Fjölbýlishús
312
886 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Lækjarmói 8 102
Bílastæði
Lækjarmói 8 102
603 Akureyri
92 m2
Fjölbýlishús
312
879 þ.kr./m2
80.900.000 kr.
Skoða eignina Herjólfsgata 36
Hleðslustöð
Skoða eignina Herjólfsgata 36
Herjólfsgata 36
220 Hafnarfjörður
124.4 m2
Fjölbýlishús
31
1044 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin