Laugardagur 17. október
Fasteignaleitin
Skráð 17. okt. 2026

SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia Resort

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Annað
243 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
95.900.000 kr.
Fermetraverð
394.650 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.spanareignir.isEignalisti
Byggt 2027
Garður
Pallur
Bílastæði
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
100171026
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Verönd og þakverönd
Upphitun
Kæling/Hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ ÁSAMT KJALLARA – FLOTT RESORT*
Vönduð og falleg einbýlishús á frábærum stað Í hinu nýja og glæsilega 700.000 fm., SANTA ROSALIA LAKE AND LIFE RESORT. Santa Rosalia stöðuvatnið er miðpunktur svæðisins og stærsta manngerða stöðuvatn í Evrópu, 16.000 fm.,  Þar er frábær aðstaða, sandströnd, eyja til að vaða út í, góð aðstaða fyrir vatnaíþróttir og ýmislegt fleira. Á svæðinu er einnig par 3 golfvöllur, frisbígolfvöllur, göngu-, skokk og hjólaleiðir, picknick svæði, jogasvæði, leikvellir fyrir börnin og ótal margt fleira skemmtilegt. Við vatnið og golfvöllinn er glæsilegur strand- og golfklúbbur, með veitingastöðum og ýmissi þjónustu. Einnig verður matvöruverslun á staðnum, en stutt er í litla bæi í kring með góðu úrvali af verslunum og veitingastöðum. Örstutt frá ströndinni og bátahöfninni (4 km. 15 mín. á hjóli) í Los Alcazares. Mar Menor golfvöllurinn er í göngufæri, en einnig eru fjölmargir fleiri golfvellir á svæðinu. Ca. 1 klst. akstur í suður frá Alicante flugvelli, 30 mín. akstur frá Corvera, nýja alþjóðlega flugvellinum í Murcia.
Frábært tækifæri til að eignast glænýtt og fallegt einbýlishús á góðum stað í sólinni á frábæru verði. Dásamleg fjölskylduparadís.

ALGJÖR NÝJUNG Á FASTEIGNAMARKAÐNUM Á SPÁNI. 

AÐEINS ÖRFÁ HÚS Í BOÐI


Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. 00354 893 2495.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is 0034 615 112 869.

Nánari lýsing:

Húsin eru sérlega vel skipulögð, þar sem allt er á einni hæð: Stór stofa, borðstofa og eldhús í björtu og opnu rými. Þrjú rúmgóð svefnherbergi og tvö  baðherbergi. Útgengi út í garð. Góð verönd, sér garður með einkasundlaug. Úti og innirými eru vel tengd og mynda skemmtilega heild.
Bílastæði inni á lokaðri lóð. 
Óinnréttaður 120 fm.  kjallari undir húsinu fylgir og er hægt að fá aðstoð arkitekts við að fullinnrétta hann. Hægt er að nýta kjallarann á ýmsa vegu, td. fyrir aukasvefnherbergi, vinnuaðstöðu eða tómstundarrými. "English patio" tryggir gott birtuflæði í kjallarann.
Stór þakverönd, 57 fm. þar sem hægt er að hafa flotta aðstöðu.
Garðurinn er sérlega skemmtilegur, með góðu rými í kringum sundlaugina, til að grilla og njóta lífsins með fjölskyldu og vinum.

Sérlega metnaðarfull hönnun þar sem tekið er tillit til umhverfis og náttúru. Svæðið er gróið og fallegt.
Vandaðar og fallegar innréttingar. Hiti í gólfum í baðherbergjum.

Hægt er að fá húsin fullbúið húsgögnum gegn aukagjaldi, þannig að ekkert er eftir nema að kaupa í matinn og flytja inn.

Örstutt göngufæri er að Santa Rosalia stöðuvatninu með frábærri sólbaðsaðstöðu, ströndum, og möguleika á ýmsum skemmtilegum vatnaíþróttum. Þar er líka glæsilegt klúbbhús, líkamsrækt, ævintýragolfvöllur ofl.
Ca. 15 mín. tekur að hjóla niður á á skemmtilegu göngugötuna í Los Alcazares, sem liggur niður á fallega sandströnd. Fjöldi verslana og veitingastaða eru þar á svæðinu. Meðfram ströndinni er margra kílómetra langt “promenade” sem býður upp á skemmtilega göngutúra. Glæsileg smábáta og snekkjuhöfn og fjölbreytt mannlíf. Fjölmargir vinsælir og skemmtilegir golfvellir eru í næsta nágrenni og hinn vinsæli Mar Menor er í göngufæri frá Santa Rosalia svæðinu.

Verð miðað við gengi 1Evra=138ISK.
Einbýlishús á einni hæð(123 fm) + stór óinnréttaður kjallari (120fm) + þakverönd(57fm ) samtals 300 byggðir fm. Verð frá 695.000 Evrur  (95.900.000 ISK) + kostn. við kaupin. 
Við þetta bætist kostnaður við að fullinnrétta kjallarann eftir óskum kaupanda.

Los Alcazares, sem er í næsta nágrenni, er ekta spænskur strandbær með fjölbreyttu bæjarlífi, útimarkaði og götuhátíðum.
Hér gefst því einstakt tækifæri til að eignast vandað og fallegt einbýlishús með nútímaþægindum í sjarmerandi umhverfi.
Skólar og heilbrigðisþjónusta í næsta nágrenni.
Los Alcazares stendur við Mar Menor, lítið innhaf frá Miðjarðarhafinu, og er þar mikil veðursæld.  Að meðaltali  eru þar um 305 sólardagar, 30 skýjaðir og 30 rigningardagar á ári.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með hagstæðu láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: strönd, ný eign, sér garður, þakverönd, kjallari, golf,
Svæði: Costa Calida, Los Alcazares, Santa Rosalia, Mar Menor,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
100171026
Fasteignanúmer
100171026

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia
Bílastæði
Hleðslustöð
SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia
Spánn - Costa Blanca
228 m2
Einbýlishús
433
333 þ.kr./m2
75.900.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia
Bílastæði
Heitur pottur
SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia
Spánn - Costa Blanca
244 m2
Einbýlishús
543
393 þ.kr./m2
95.900.000 kr.
Skoða eignina Víðidalur 3
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Opið hús:21. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Víðidalur 3
Víðidalur 3
260 Reykjanesbær
232,6 m2
Einbýlishús
525
597 þ.kr./m2
138.900.000 kr.
Skoða eignina Vesturberg 199
Opið hús:24. okt. kl 12:00-12:30
Skoða eignina Vesturberg 199
Vesturberg 199
111 Reykjavík
224,8 m2
Einbýlishús
715
577 þ.kr./m2
129.700.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin