Laugardagur 28. desember
Fasteignaleitin
Skráð 24. nóv. 2024
Deila eign
Deila

Góðakur 8

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
361.8 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
272.100.000 kr.
Brunabótamat
186.500.000 kr.
Mynd af Jason Kristinn Ólafsson
Jason Kristinn Ólafsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2011
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Útsýni
Sérinng.
Fasteignanúmer
2323236
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Í lagi
Raflagnir
Í lagi
Frárennslislagnir
Í lagi
Gluggar / Gler
Í lagi
Þak
Í lagi
Svalir
Tvennar
Upphitun
Hitaveita / gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Betri Stofan fasteignasala og Jason Kristinn s. 775 1515 kynnr:  Góðakur 8, tæplega 370 fm, einstaklega vel staðsett einbýlishús innst í botnlanga í Akrahverfinu, 210 Garðabæ. 
Eignin skiptist í: Tvær hjónasvítur. 4 baðherbergi og 3 svefnherbergi, samtals 5 svefnherbergi. Hlýlegt stórt eldhússvæði sem tengist stofum með fallegu útsýni. Stofur með niðurteknu lofti og arinn. Tvennar svalir, morgun- og síðdegissvalir. Bílskúr og geymslur í kjallara og á palli. Stór niðurgrafinn pallur með heitum potti. Endalóð á einstökum stað niður við gróinn dal og læk. Stór gróinn garður umlykur húsið. 
Sigurður Hallgrímsson arkitekt hjá Arkþing teiknaði/hannaði húsið. Rut Káradóttir sá um innanhússhönnun 

Nánari lýsing: 
Komið inní anddyri, rúmgóðir fataskápar ásamt litlu fataherbergi með sérsmíðuðum innréttingum. Innangengt er í bílskúrinn úr því rými. Bílskúrinn er rúmlega 30 fm. með heitu og köldu vatni.
Auka hjónasvíta: Er í kringum 25 fm. Rúmgott herbergi með baðherbergi með innréttingu og sturtu. Frá þessu herbergi er gengið út á litla verönd sem snýr til vesturs.  
Gengið er frá holi upp hálfa hæð:
Efri hæðin skiptist í eldhús, sjónvarpsrými, stofur, gestasnyrtingu, skrifstofu og svalir.  
Eldhús: eldhús eignarinnar er vel útbúið með sérsmíðaðri fallegri dökkbrúnni eikar innréttingu með stein á borðum. Mikið skápapláss er í eldhúsi og stór eyja með gashelluborði. Uppþvottavél er innbyggð ásamt tveimur ísskápum, vínskáp, tveir bakarofnar og gufuofn eru í vinnuhæð. Öll eldhústæki eru frá Miele. Partur af eldhússvæðinu er rúmgott fjölskyldurými/sjónvarpsaðstaða ásamt fallegri aðliggjandi skrifstofu með sérsmíðuðum innréttingum og glerhurðum. Allar innréttingar í húsinu eru sérsmíðaðar. 
Stofa: stofa og borðstofa eru samliggjandi og rúmgóðar. Fallegur arinn er í stofunni sem nýtur sín vel í stofu og borðstofu. Sérsmíðaðar bókahillur og steypt arinhilla prýða stofuna. Niðurtekið loft. Á efri hæð hússins eru tvennar svalir. 
Gestasalerni: á aðalhæð er gestasalerni með upphengdu salerni, innbyggðum blöndunartækjum og fallegum sérsmíðuðum vaski.
Neðri hæð skiptist í eftirfarandi: 
Hjónaálma: með fataherbergi og vönduðum innréttingum, baðherbergi með sturtu og baðkari ásamt sérsmíðaðri baðinnréttingu. Útgengið er á verönd með heitum potti frá baðherbergi. Frá fataherbergi er gengið inn í þvottahús með innréttingu. Einnig er aðgengi að þvottahúsi frá ganginum.  
Þrjú önnur svefnherbergi eru á neðri hæð og baðherbegi með sturtu og sérsmíðaðri innréttingu og steinn á borði. Rúmgóð geymsla er til staðar. Sjónvarpsaðstaða (hol) er einnig á hæð og þar er hægt að ganga út á pallinn sem snýr til suðvesturs. 
Stór pallur(Bangkirai hardvidur) er á neðri hæðinni sem er niðurgrafinn umvafinn gróðri og er því í miklu skjóli. Á pallinum er gott geymslupláss ásamt dúkkuhúsi sem lítið fer fyrir á sjálfum pallinum. Fallegur gróinn garður umlykur pallinn.
Næg bílastæði fyrir framan bílskúr og hús, sem og í botnlanga.
Stutt í skóla og íþróttastarf, sem og verslanir og almennar samgöngur. 

Nánari upplýsingar:  Jason Kristinn Ólafsson s. 775 1515 löggiltur fasteignasali, jason@betristofan.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2011
33.3 m2
Fasteignanúmer
2323236
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
11.800.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Dyngjugata 15
3D Sýn
Bílskúr
Opið hús:07. jan. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Dyngjugata 15
Dyngjugata 15
210 Garðabær
330.2 m2
Parhús
927
636 þ.kr./m2
210.000.000 kr.
Skoða eignina Súlunes 7
Bílskúr
Skoða eignina Súlunes 7
Súlunes 7
210 Garðabær
320.9 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
835
670 þ.kr./m2
215.000.000 kr.
Skoða eignina Mosprýði 2
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Mosprýði 2
Mosprýði 2
210 Garðabær
350.8 m2
Parhús
55
Fasteignamat 177.700.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Haukanes 6
Bílskúr
Skoða eignina Haukanes 6
Haukanes 6
210 Garðabær
384.5 m2
Einbýlishús
826
858 þ.kr./m2
330.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin