ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:Tjarnabraut 18, 260 Reykjanesbær, birt stærð 91.2 fm.
Falleg og vel skipulögð íbúð á vinsælum stað í Innri-Njarðvík með sér inngangi á 1. hæð. Eignin samanstendur af 2 rúmgóðum svefnherbergjum, eldhúsi, auka rými inn af eldhúsi, borðstofu og stofu með útgengi á góðan sólpall sem snýr til suðurs, nýlega uppgert baðherbergi. Geymsla og þvottahús eru innan íbúðar. Vagna- og hjólageymsla á fyrstu hæð auk hlutdeildar í geymslu á 2. hæð. Stutt í leikskóla og grunnskóla, verslun og góð útivistarsvæði. Tvö sérmerkt bílastæði.
Nánari upplýsingar veitir/veita:
Sigurjón Rúnarsson Aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 771-9820, tölvupóstur sigurjon@allt.is.
Haukur Andreasson Löggiltur fasteignasali í síma 866-9954 og á netfangið haukur@allt.is Nánari lýsing eignar:Forstofa er
rúmgóð með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús hefur parket á gólfi. Innréttingar á tveimur veggjum, flísar á milli efri og neðri skápa.
Auka rými: inn af eldhúsi er aukarými með glugga sem nýtt er í dag sem tölvu og snyrtiherbergi.
Stofa og borðstofa: rúmgóð stofa fyrir sjónvarpsaðstöðu og borðstofuborð, parket er á gólfi. Gengið er út á góðan afgirtan sólpall frá stofu.
Baðherbergi er nýlega endurnýjað , walk in sturta, vegghengt salerni, snyrtileg innrétting, flísar á gólfi og veggjum.
Hjónaherbergi er rúmgott herbergi með góðum fataskápum. Gluggi sem snýr til suðurs.
Barnaherbergi með fataskáp. Gluggi sem snýr til norðurs.
Þvottahús/geymsla er með tengi fyrir þvottavél og þurrkara og skolvaski. Gengið er inn í afar rúmgóða geymslu frá þvottarými.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla, sem og hillusamstæða í sameiginlegri geymslu.
Tvö sérmerkt bílastæði á lóð. ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.