Mánudagur 16. september
Fasteignaleitin
Skráð 13. sept. 2024
Deila eign
Deila

Tjarnabraut 2 íbúð 103

FjölbýlishúsSuðurnes/Reykjanesbær/Njarðvík-260
77.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
59.900.000 kr.
Fermetraverð
773.902 kr./m2
Fasteignamat
3.000.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Lilja Valþórsdóttir
Lilja Valþórsdóttir
Byggt 2024
Lyfta
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2532517
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
3
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
1 - Samþykkt
PRODOMO fasteignasala kynnir nýtt og glæsilegt 23 íbúða fjölbýlishús á góðum stað að Tjarnabraut 2 í Innri Njarðvík. 
Vel skipulagðar þriggja og fjögurra herbergja íbúðir sem skilast fullfrágengnar með gólfefnum. Innréttingar eru sérsmíðaðar með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Alrými íbúðinna er bjart, þar eru stofa og eldhús í opnu rými. Gólfhiti er í eignunum. Lagt verður fyrir rafhleðslu við öll stæði auk þess sem tvær hleðslustöðvar verða uppsettar á lóð.  Eignirnar verða tilbúnar til afhendingar í Febrúar 2025.


Nánari lýsing íbúðar 103:
Glæsileg þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með sér inngangi. Íbúðin skiptist í anddyri með fataskáp. Stofu og eldhús í opnu rými, tvö svefnherbergi með fataskápum. Frá stofu er útgengt á baklóð þar sem íbúðinni fylgir sérafnotareytur. Baðherbergi með sturtu, þar er aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Geymsla er innan íbúðar, góður gluggi er á henni og því hægt að nýta hana sem þriðja svefnherbergið.

Tjarnabraut 2
Glæsilegt staðsteypt hús sem er einangrað að utan og klætt með báruðu áli. Svalahurðir og gluggar úr álklæddu timbri. Eignirnar skilast fullfrágengnar að utan sem innan. Íbúðirnar eru með sérsmíðuðum innréttingum og faskápum frá Parka. Litasamsetning er hnota með svörtum höldum. Vönduð tæki í eldhúsi frá Electrolux, span helluborð. Á baðherbergjum eru flísar á gólfi og tveimur veggjum. Eignirnar eru vel skipulagðar. Stétt við innganga er hellulögð og gönguleiðir með snjóbræðslukerfi. Bílastæði verða malbikuð og á lóð verður hjólaskýli.
Frábær staðsetning í nálægð við skóla og leikskóla ásamt verslun og þjónustu. Samgöngur til og frá svæðinu eru auðveldar og örstutt er á Reykjanesbraut.
 
Nánari upplýsingar veita Lilja Valþórsdóttir löggiltur fasteignasali s: 860-6886, lilja@prodomo.is
Hákon Ó. Hákonarson löggiltur fasteignasali s: 899-1298, hakon@prodomo.is
Thelma Hrund Tryggvadóttir löggiltur fasteignasali s: 824-6402, thelma@prodomo.is eða á skrifstofu Prodomo að Hafnargötu 15, Reykjanesbæ


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
* Kaupandi greiðir skipulagsgjald af hinum selda eignarhluta þegar það verður lagt á, nú 0,3% af brunabótamati.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Dísardalur 5 - Íb. 203
Dísardalur 5 - Íb. 203
260 Reykjanesbær
82.4 m2
Fjölbýlishús
312
758 þ.kr./m2
62.500.000 kr.
Skoða eignina Dísardalur 1 - Íb. 201
Dísardalur 1 - Íb. 201
260 Reykjanesbær
82.4 m2
Fjölbýlishús
312
758 þ.kr./m2
62.500.000 kr.
Skoða eignina Tjarnabraut 14
Skoða eignina Tjarnabraut 14
Tjarnabraut 14
260 Reykjanesbær
89.6 m2
Fjölbýlishús
312
669 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Tjarnabraut 2 íb 106
Tjarnabraut 2 íb 106
260 Reykjanesbær
77.4 m2
Fjölbýlishús
312
774 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin