Fimmtudagur 12. mars
Fasteignaleitin
Skráð 25. nóv. 2025

Grafhólar 3

RaðhúsSuðurland/Selfoss-800
190.3 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
98.500.000 kr.
Fermetraverð
517.604 kr./m2
Fasteignamat
99.800.000 kr.
Brunabótamat
95.350.000 kr.
Mynd af Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2290149
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Upprunalegar sjá byggingarár
Raflagnir
Upprunalegar sjá byggingarár
Frárennslislagnir
Upprunalegar sjá byggingarár
Gluggar / Gler
Upprunalegir sjá byggingarár
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Gimli fasteignasala kynnir í einkasölu fallegt og fjölskylduvænt fimm herbergja raðhús með bílskúr á vinsælum stað á Selfossi.
Vandaður frágangur og innréttingar. Sólrík verönd framan við húsið og stórt vandað útisvæði með heitum potti á baklóð. 
Stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla og skóla.

* SMELLTU HÉR FYRIR MYNDBAND AF EIGNINNI *

Eignin er skráð skv. fasteignaskráningu HMS 190,3fm, þar af er bílskúr 35,2fm.
Fasteignamat 2026 er 99.800,000 mkr
Nánari upplýsingar veitir Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse Löggiltur fasteignasali í síma 792-7576 eða gudmunda@gimli.is


Eignin skiptist í forstofu, stofu og borðstofu, fjögur rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Að auki eru tvö góð útisvæði, samtals um 130fm.


Nánar um eignina: 
Gólfhiti er í allri eigninni sem er að hluta flísalögð með fallegum flísum frá Álfaborg, en önnur rými eru með harðparketi.  
Forstofa 6,2fm er rúmgóð með góðum fataskáp.

Eldhús 12fm er í opnu alrými, mjög rúmgott með góðu vinnuplássi. Hvít eldhúsinnrétting frá HTH, flísalagt er milli borðplötu og efri skápa. Innbyggður ofn í vinnuhæð, helluborð og háfur frá AEG.
Stofa og borðstofa 38fm eru samliggjandi eldhúsi í stóru og björtu alrými. Útgengt er úr stofu í bakgarð með um 100fm sólpalli/verönd, heitur pottur og falleg innbyggð lýsing.
Hjónaherbergi  19,8fm er mjög rúmgott með fataherbergi.
Barnaherbergi I 10,3fm er inn af forstofu og er með fataskáp.
Barnaherbergi II 10,5fm er rúmgott með fataskáp.
Barnaherbergi III 13,5fm er í dag nýtt sem sjónvarpsherbergi, útgengt er úr herberginu í bakgarð.  
Baðherbergi 10fm er með rúmgóðri innréttingu með handlaug, upphengt salerni, baðkar, stór sturta, handklæðaofn, flísar í hólf og gólf.
Þvottahús 4,6fm góð innrétting sem rúmar þvottavél og þurrkara, innangengt í bílskúr, flísar á gólfi.
Bílskúr 30,8fm, rúmgóður með sjálfvirkri hurð, þriggja fasa rafmagni, flísalögðu gólfi með gólfhita. 
Geymsluloft með góðu aðgengi er yfir meirihluta eignarinnar.
Næturlýsing er á gangi og granít í öllum gluggakistum.
Möguleiki er á að bæta við gestasnyrtingu samkvæmt samþykktri teikningu.
Á baklóð er stór afgirtur sólpallur (ca 100fm) með útiflísum að hluta og heitum potti (hitaveitupottur). Falleg lýsing er í skjólveggjum. Steypt, ca 30fm, verönd er fyrir framan húsið með skjólveggjum.


Falleg eign í góðu og rólegu fjölskylduhverfi í vinsælli staðsetningu á Selfossi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, Fjölbrautaskóla Suðurlands, grunnskóla og leikskóla.

Nánari upplýsingar veitir Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse Löggiltur fasteignasali í síma 792-7576 eða gudmunda@gimli.is

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
07/02/202590.500.000 kr.96.000.000 kr.190.3 m2504.466 kr.
26/11/200716.900.000 kr.18.500.000 kr.190.3 m297.214 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
35.2 m2
Fasteignanúmer
2290149

Myndir (52)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
Spánn - Costa Blanca
135 m2
Einbýlishús
423
596 þ.kr./m2
80.400.000 kr.
Skoða eignina Holtagerði 70
Bílskúr
Skoða eignina Holtagerði 70
Holtagerði 70
200 Kópavogur
149 m2
Fjölbýlishús
514
754 þ.kr./m2
112.400.000 kr.
Skoða eignina Háaleitisbraut 117
Háaleitisbraut 117
108 Reykjavík
118.1 m2
Fjölbýlishús
513
677 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Ásabyggð 18
Bílskúr
Skoða eignina Ásabyggð 18
Ásabyggð 18
600 Akureyri
172.8 m2
Hæð
615
491 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin