Baldur fasteignasali – Beinn sími 450-0000 kynnir: Í einkasölu fallega og vel skipulagða
fjögurra herbergja íbúð við Uglugötu 2 í Mosfellsbæ. Um er að ræða bjarta og rúmgóða íbúð á fjölskylduvænum stað í vesturhlíð Helgafells, með
stórum suðvestursvölum,
þremur svefnherbergjum og mjög rúmgóðri sérgeymslu í kjallara sem nýtist einstaklega vel sem td.
vinnustofa, tómstundarými eða líkamsræktaraðstaða. HjólastólaaðgengiSamkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar
139,20 fermetrar, þar af er sérgeymsla í kjallara 33,7 fermetrar.
Íbúðin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi/þvottaherbergi, eldhús, stofu og borðstofu í opnu rými. Eigninni fylgja einnig rúmgóðar svalir í suðvesturátt og
tvö sérmerkt bílastæði á lóð.Nánari lýsing:Forstofa: Lokuð forstofa. Flísar á gólfi og fataskápur.
Eldhús: Falleg eldhúsinnrétting frá Parka með góðu skápa- og vinnuplássi. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, ofn, helluborð og vifta.
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð stofa og borðstofa í opnu rými með eldhúsi. Útgengt er úr stofu út á stórar svalir í suðvesturátt.
Svefnherbergi: Svefnherbergin eru
þrjú, öll rúmgóð með fataskápum og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi/þvottaherbergi: Rúmgott baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf. Innrétting, vegghengt salerni og sturta. Í innréttingu er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð ásamt skolvaski.
Sérgeymsla: Mjög rúmgóð sérgeymsla í kjallara, skráð 33,7 fermetrar. Geymslan býður upp á mikla möguleika og getur nýst vel sem vinnustofa, tómstundarými, líkamsræktaraðstaða eða góð almenn geymsla.
Annað: Húsið er tveggja hæða fjölbýlishús með geymslukjallara,
byggt árið 2018. Húsið er að mestu einangrað og álklætt að utan og því viðhaldslétt. Lítil sameign er í húsinu og sameiginlegur rekstrar- og viðhaldskostnaður er lágur. Tvö sérmerkt bílastæði fylgja íbúðinni á lóð.
Staðsetning: Eignin er vel staðsett í rólegu og fjölskylduvænu hverfi í Mosfellsbæ, þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu, Álafosskvosina og fallegar göngu- og hjólaleiðir. Frábær staðsetning fyrir þá sem vilja njóta nálægðar við náttúruna án þess að fórna góðri þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000Skoða meðmæli -
Verðmat fasteigna -
Lúxus fasteignir -
Greiðslumat.is - Hvað getur þú keypt