Atvinnueign kynnir til leigu: um 240 fm bjart og rúmgott skrifstofuhúsnæði á góðum stað við Eiðistorg á Seltjarnarnesi, þar sem er fjölbreytt verslun og þjónusta í næsta nágrenni. Í sama húsi er m.a. Arna Kaffihús og stutt í aðra þjónustu. Gott aðgengi er að húsnæðinu og næg bílastæði eru við bygginguna.
Húsnæðið er vel skipulagt og hentar fyrirtækjum sem vilja blanda saman opnum vinnurýmum og lokuðum skrifstofum.
Um er að ræða sex lokaðar skrifstofur. Stór opin vinnurými fyrir starfsmenn, fundarherbergi, setu-/samstarfsrými, eldhús, tvö salerni og tæknirými / server room
Skipulag rýmisins býður upp á sveigjanlega nýtingu, bæði fyrir teymi sem vinna saman í opnu rými og fyrir þá sem þurfa lokaðar vinnuaðstæður. Lyfta er í húsinu.
VSK bætist við leiguverð. Laust eftir samkomulagi. Allar nánari upplýsingar veitir:
Ólafur Ingi Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í síma
847-7700 eða
olafur@atvinnueign.is Á vefsíðu okkar getur þú fundið fleiri eignir sem og kynnt þér þjónustu Atvinnueigna ehf,
www.atvinnueign.is - Atvinnueignir eru okkar fag -