Miðvikudagur 17. júní
Fasteignaleitin
Opið hús:21. júní kl 16:00-17:00
Skráð 17. júní 2026

Stakkhamrar 22

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
280 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
183.000.000 kr.
Fermetraverð
653.571 kr./m2
Fasteignamat
141.500.000 kr.
Brunabótamat
103.500.000 kr.
SG
Svan G Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Eignalisti
Garður
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2038575
Landnúmer
109036
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer íbúðar
010101
Vatnslagnir
Sjá upplýsingablað seljanda
Raflagnir
Sjá upplýsingablað seljanda
Svalir
0
Lóð
1000.00
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging

Miklaborg kynnir: Mjög fallegt og vel skipulagt einbýlishús í Hamrahverfi í Grafarvogi. Eignin er skráð 204,5 fm en við það bætist ca 75 fm útgrafið rými þar sem gert er ráð fyrir auka íbúð með sérinngangi, þvottahúsi og tómstundarrými. Helidarstærð er því nálægt 280 fm. Að öðru leyti skipist eignin í efri hæð með mjög stórri stofu, borðstofu og eldhúsi, baðherbergi og hjónaherbergi auk bílskúrs. Á neðri hæð eru 2-3 herbergi og baðherbergi, útgrafið tómstundarrými og aukaíbúð með sérinngangi. Viðhaldi á eigninni hefur verið vel sinnt í gegnum árin.


Mjög gott útsýni til norðurs og stutt í skóla og leikskóla í hverfinu.

Nánari lýsing:

Efri hæð: Gengið inn á efri hæð og komið inn í forstofu með fataskáp. Glæsilegt nýlegt eldhús með sérlega miklu skápaplássi, vönduðum tækjum þar á meðal tveir ofnar og span helluborð með innbyggðri viftu. Eldhúsið er opið inn í rúmgóða borðstofu en þaðan er hægt að ganga út á stóra afgirta verönd sem snýr til suðvesturs. Stofan snýr til norðus og er rúmgóð með einstöku útsýni. Hjónaherbergi með fataskápum. Baðherbergi er inn af forstofu með flísalögðu gólfi og hluta veggja, þar er baðkar, vaskur og upphengt salerni. Upptekin loft eru í flestum rýmum á hæðinni. Gólfefni eru vönduðu viðarparketi og steinflísum.

Neðri hæð: Ágætur stigi niður á neðri hæð. Mjög stórt herbergi sem gætu verið tvö herbergi. Annað rúmgott herbergi með útgengi út í garð til norðurs. Baðherbergi er flísalagt að hluta, þar er sturtuklefi með glerhurð, innrétting með vask, salerni og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Gólfefni eru með vönduðu viðarparketi og flísum.

Útgrafið rými: Tenging við neðri hæð með hurð. Gert er ráð fyrir þvottahúsi þar fyrir aðalibúð og stóru tómstundarými með glugga. Einnig er gert ráð fyrir stúdíóíbúð með sérinnangi vestan megin þar, hugmyndir nýrra eigenda ráða ferðinni þar. Full lofthæð er í rýminu nema tómastundarými er með rúmlega 2ja metra lofthæð. Búið er að tengja allar skólplagnir og niðurföll, leggja í gólf og tengja hita í ofna.

Lóðin er sérlega falleg með trjágróðri, sólpalli að framan en snjóbræðsla er í aðkomu að aðalinngangi og að bílskúrshurð. Baklóð er með grasflöt, trjágróðri og skjólgirðingu en stigar liggja sitt hvoru megin við húsið niður í garð.

Bílskúr er rúmgóður með heitu og köldu vatni ásamt rafdrifinni hurð.


Skráning eignarinnar er samkvæmt HMS: Efri hæð 101,6 fm, bílskúr 38,6 fm og neðri hæð 64,3 fm. Við þetta bætist um 75 fm útgrafið og óskráð rými.


Hér eru um að ræða fallegt fjölskylduhús í vinsælu hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla og útivistasvæði, auk þess er stutt í fjölbreytta þjónustu og stofnleiðir.


Nánari upplýsingar gefur Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is


DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
22/01/201451.400.000 kr.47.900.000 kr.204.5 m2234.229 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (50)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Orkureiturinn D2 309
Orkureiturinn D2 309
108 Reykjavík
138.5 m2
Fjölbýlishús
322
1068 þ.kr./m2
147.900.000 kr.
Skoða eignina Seiðakvísl 5
IMG_4954.JPG
Skoða eignina Seiðakvísl 5
Seiðakvísl 5
110 Reykjavík
185.1 m2
Einbýlishús
6
751 þ.kr./m2
139.000.000 kr.
Skoða eignina Úugata 40
Bílskúr
Skoða eignina Úugata 40
Úugata 40
270 Mosfellsbær
239.2 m2
Raðhús
624
623 þ.kr./m2
149.000.000 kr.
Skoða eignina Hesthamrar 5
Bílskúr
Opið hús:18. júní kl 17:45-18:30
Skoða eignina Hesthamrar 5
Hesthamrar 5
112 Reykjavík
198 m2
Hæð
513
606 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin