Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala kynna:
Vel skipulagða og staðsetta íbúð með útsýni ásamt einkastæði í bílageymslu í Salahverfi í Kópavogi.
Eignin samanstendur af forstofu, tveimur svefnherbergjum , baðherbergi með baðkari og stakstærðri sturtu, þvottahúsi innan íbúðar, eldhúsi, borðstofu, stofu með útgengi út á vestursvalir ásamt geymslu í kjallara, einkastæðii í bílageymslu og aðgengi að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Eignin er á þriðju hæð, merkt 301 og er mjög vel rekið og stöndugt húsfélag í húsinu.
Birt stærð 99,7 fm, þar af er geymsla 6,6 fm.
Eignin er til afhendingar við undirritun kaupsamnings.
Nánari lýsing:
Forstofa - fatahengi, fataskápur og flísar á gólfi.
Baðherbergi - er flísalagt í hólf og gólf, innrétting með vaski, salerni, baðkar og stakstæð sturta.
Svefnherbergi (16 fm) - rúmgott með góðum fataskáp, parketi á gólfi og vesturglugga.
Svefnherbergi (9,2 fm) - rúmgott með fataskáp, parketi á gólfi og vesturglugga.
Stofa/borðstofa/sjónvarpshol - rúmgóð með útgengi á vestursvalir, gluggar bæði á vestur- og norðurhlið, parket á gólfum.
Eldhús - stúkað af frá alrými með léttum vegg, L innréttingu með efri og neðri skápum, helluborði og bakaraofni, plássi fyrir einfaldan ísskáp í innréttingu og tengi fyrir uppþvottavél, flísar á gólfi.
Þvottahús - inn af eldhúsinu með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísar á gólfi.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign í kjallara. Einkabílastæði er í bílageymslu.Stutt er í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla ásamt góðu aðgengi að stórum umferðaræðum til og frá hverfinu.
Upplýsingar gefur:
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali
Sími: 899 0720
Netfang: hrannar@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.