Fasteignasalan TORG og Margrét Rós lgf. kynna í sölu 3ja herbergja íbúð á 5. hæð í lyftufjölbýli með rúmgóðum svölum m/svalalokun og glæsilegu útsýni ásamt sérmerktu stæði í bílageymslu. Íbúðin er með sérinngang af svölum og skiptist í forstofu, eldhús ásamt stofu og borðstofu í opnu rými, góðar suðursvalir með svalarlokun, tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Sérgeymsla íbúðar er staðsett á 1. hæð í fjölbýlinu. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós lgf. í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is.*** SMELLTU HÉR TIL AÐ SÆKJA SÖLUYFIRLIT ***Um er að ræða fallega og vel staðsetta útsýnisíbúð í góðu lyftuhúsi í Salahverfi, einu vinsælasta hverfi Kópavogs. Fallegt og óheft útsýni er frá svölum til suðurs og suð-vesturs, yfir golfvöll GKG og til sjávar. Stutt er í helstu þjónusta og verslanir. Leik- og grunnskólar eru í göngufæri ásamt góðri íþróttaaðstöðu og sundlaug (Salalaug). Góðar almenningssamgöngur eru í nálægð sem og fallegar göngu- og hjólaleiðir um hverfið, en örstutt er í góð útivistarsvæði og óspillta náttúruna til að njóta útiverunnar. Draumaíbúð fyrir golfarana þar sem Leirdalsvöllurinn er rétt við húsið.
Birt stærð skv. fasteignaskrá HMS er 94,2 m2, þarf af er 8,1 m2 geymsla á jarðhæð.Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign hérNánari lýsing:Forstofa er rúmgóð og björt með opnanlegum glugga, stórum fataskáp og flísar á gólfi. Hægt er að loka forstofunni með millihurð.
Alrými þar sem eldhús, stofa og borðstofa eru samliggjandi í opnu og björtu rými með parket á gólfi.
Eldhús með fallegri L-laga innrétting með efri og neðri skápum, helluborði, ofn og háf. Eldhús er opið við stofu og borðstofu.
Stofa/borðstofa er björt með stórum glugga mót suðri og útgengt á suðursvalir með afar fallegu og miklu útsýni.
Svalir eru rúmgóðar (8,1m
2) með svalarlokun og flísar á gólfi, og nýtist vel allt árið um kring.
Hjónaherbergi er bjart og rúmgott (13,1m
2) með góðum fataskápum og parket á gólfi.
Svefnherbergi er rúmgott (11,2m
2) með góðum fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalegt í hólf og gólf með walk-in sturtu, innréttingu með vask, upphengdu salerni og handklæðaofn.
Þvottahús er innan íbúðar, með vegghillum og borði, handklæðaofni og skolvask. Tengin fyrir þvottavél og þurrkara undir borði.
Gólfefni, parket er á öllum gólfum nema forstofa, þvottahús og baðherbergi eru flísalögð.
Hurðar eru yfirfelldar og með 90 cm hurðabil í íbúð eru breiðari og því gott aðgengi t.d fyrir hjólastól.
Myndavéladyrasími er í eigninni.
Í sameign:
Geymsla (8,1m
2) og staðsett inn af sameignargangi á jarðhæð hússins.
Stæði í bílageymslu (merkt: 01-B25) fylgir eigninni, staðsett nærri inngangi og lyftu á jarðhæð. Búið að leggja rafmagn fyrir rafhleðslustöð.
Hjóla- og vagnageymsla í er sameign á jarðhæð hússins með
útgengi á lóð.
Húsið og lóðin:Þorrasalir 5-7 er fjögurra og fimm hæða staðsteypt fjölbýlishús auk kjallara og lokaðri bílageymslu. Húsið telst einn matshluti með alls 35 íbúðum. Aðalinngangur er á 2. hæð og inngangur í og úr bílageymslu er á jarðhæð hússins ásamt geymslum íbúða og sameiginlegri hjóla/vagnageymsla. Aðkoman að húsinu er góð og eru gangstígar frá bílastæðum að stigahúsi upphitaðir með snjóbræðslukerfi. Alls eru 70 stæði sem fylgja húsinu, þar af eru 35 stæði í lokaðri bílageymslu og 35 stæði á bílaplani við inngang hússins.
Nánari upplýsingar veita:Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s.
856-5858 /
margret@fstorg.isAðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s.773-3532 / adalsteinn@fstorg.is
ERTU Í SÖLUHUGLEIÐINGUM? SMELLTU HÉR
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉRUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. fasteignasalan TORG bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.