EIGNAVER 460-6060
Urðargil 27 Akureyri.
Glæsileg, opin, björt og mikið endurnýjuð 4-5 herbergja íbúð á einni hæð í parhúsi með innbyggðum bílskúr á vinsælum stað í Giljahverfi. Heitur og kaldur pottur á rúmgóðri verönd.
Íbúðin er 130,9 fm. og þar af er bílskúrinn 24 fm.
Eignin skiptist í forstofu, gang, stofu og eldhús í einu rými, gengið út á stóra vestur verönd út úr eldhúsi. Á gangi eru þrjú herbergi, baðherbergi og þvottahús sem núna er nýtt sem vinnuherbergi. Þaðan er gengið inn í bílskúr.
Forstofa, gráar flísar og fallegur hvítur fataskápur.
Hol/gangur, harðparket á gólfi.
Eldhús, endurnýjað árið 2018, falleg hvít innrétting með flísum á mill efri- og neðri skápa, innbyggð uppþvottavél og ísskápur. Tveir ofnar, annar þeirra er bæði ofn og örbylgjuofn. Harðparket.
Stofa, harðparket á gólfi, falleg kamina.
Svefnherbergisgangur, harðparket á gólfi, þrjú svefnherbergi, öll með skápum og harðparketi á gólfum.
Baðherbergi er glæsilegt, endurnýjað 2018, flísar á gólfi og veggjum, "walk in" sturta, hvít innrétting og speglaskápur. Upphengt WC og handklæðaofn.
Þvottahús, er í dag nýtt sem vinnuherbergi, flísar á gólfi, allar lagnir til staðar til að breyta aftur í þvottahús ef vill.
Bílskúr, flísar á gólfi, innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél. Gott geymslurými yfir bílskúr.
Gengið er úr eldhúsi út á mjög stóra verönd sem snýr til vesturs. Nýlega búið að setja upp skjólveggi með lýsingu, heitan og kaldan pott.
Annað:
- Frábært útsýni upp í Hlíðarfjall.
- Nýlegir skjólveggir og verönd til vesturs
- Heitur og kaldur pottur
- Falleg lýsing á verönd og við heitan pott.
- Hiti í plani og stétt að hluta, lokað kerfi
- Hús málað utan 2020
- Um er að ræða suðurhluta parhússins.
- 15 fm. geymsluskúr við verönd.
*** Virkilega falleg eign sem vert er að skoða***
Húseignin er í einkasölu hjá Eignaver.
Nánari upplýsingar veita:
Arnar s: 898-7011 / arnar@eignaver.is
Begga s: 845-0671 / begga@eignaver.is