Mánudagur 7. september
Fasteignaleitin
Skráð 7. sept. 2026

Mýrar 4

EinbýlishúsVestfirðir/Patreksfjörður-450
304 m2
6 Herb.
Verð
75.000.000 kr.
Fermetraverð
246.711 kr./m2
Brunabótamat
139.350.000 kr.
Byggt 1976
Svalir
Pallur
Fasteignanúmer
21239308
Húsgerð
Einbýlishús

Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir (FSRE) kynnir alla húseignina að Mýrum 4, Patreksfirði, nánar tiltekið eign með fastanúmer F2123930, ásamt öllu því sem eigninni fylgir. Einstaklega reisulegt einbýlishús á tveimur hæðum. Eignin stendur á 700 fm. gróinni lóð með miklu útsýni til sjávar. Húsið hefur fengið ágætis viðhald verið endurnýjað að hluta, þar á meðal neysluvatnslagnir og baðherbergi.

Rúmgott einbýlishús með sjávarsýn 
  • Heildarstærð: 304 fm
  • Bílskúr: 34,4 fm
  • Byggingarár: 1976
  • Herbergi: 5 svefnherbergi + sjónvarpshol + húsbóndaherbergi
  • Staðsetning: Einstaklega falleg staðsetning með útsýni yfir bryggju og fjörðinn
Efri hæðin, 117,6 fm. – Björt og opin hönnun
  • Flísalögð forstofa með gestasalerni
  • Björt og rúmgóð stofa með útgengi á stórar svalir og steinlagðar gluggakistur
  • Eldhús einnig með útgengi á svalir, með eikarinnréttingu í U-lagi, borðkrók, helluborði, viftu og aðstöðu fyrir uppþvottavél.
  • Parket á holi, stofu og eldhúsi
  • Herbergi við inngang sem áður var hluti af stofu – auðvelt að fjarlægja vegg
  • Aukainngangur og forstofu-/húsbóndaherbergi inn af eldhúsi
  • Gengið niður fallegan timburstiga á neðri hæð
Neðri hæðin, 152 fm. – Góð fjölskylduaðstaða
  • Glæsilegt sjónvarpshol með arni
  • Rúmgott hjónaherbergi með fataskápum
  • Þrjú barnaherbergi (án skápa)
  • Þvottahús með útgengi í garð og verönd
  • Geymsla/hitakompa með hitatúbu og lagnagrind hússins
  • Nýlegt baðherbergi með gólfhita, baðkari og sturtu, upphengdu salerni og handklæðaofni
Bílskúr og aðkoma
  • 34,4 fm bjartur bílskúr með gluggum, hurðaopnara og gönguhurð
  • Vaskur og tveir kranar
  • Máluð gólf
  • Steypt bílaplan og stétt að inngangi
  • Köld geymsla við hlið bílskúrs (upphaflega hönnuð sem ruslatunnuskýli)
Viðhald og ástand
  • Húsið nýmálað að utan og múrviðgert
  • Upprunalegir gluggar í góðu ásigkomulagi
  • Neysluvatnslagnir og kerfi endurnýjað ásamt baðherbergi á neðri hæð
  • Leigjandi hefur greint frá leka í svalahurð í mjög slæmu veðri
Þetta er eign á besta stað við sjávarsíðuna á Patreksfirði. Hentar vel fyrir  stóra fjölskyldu sem leitar að einbýlishúsi með góðu aðgengi, bílskúr, og útsýni.

Eignin selst í því ástandi sem hún er við skoðun og afhendist við kaupsamning. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá FSRE eða með því að senda tölvupóst á eignasala@fsre.is

Seljandi þekkir ekki eignina umfram það sem fram kemur í opinberum gögnum. Því leggur seljandi ríka áherslu á að sérstakrar árvekni sé gætt við skoðun og úttekt á eigninni og veitir FSRE allan nauðsynlegan aðgang til þess.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir
http://www.fsre.is

Myndir (14)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf
Spánn - Costa Blanca
298 m2
Einbýlishús
634
326 þ.kr./m2
97.000.000 kr.
Skoða eignina Nesbali 102
Hleðslustöð
Skoða eignina Nesbali 102
Nesbali 102
170 Seltjarnarnes
279 m2
Raðhús
715
747 þ.kr./m2
208.500.000 kr.
Skoða eignina Þingvallastræti 10
Þingvallastræti 10
600 Akureyri
170.3 m2
Einbýlishús
623
Fasteignamat 75.000.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Laugarbrekka 22
Skoða eignina Laugarbrekka 22
Laugarbrekka 22
640 Húsavík
69.1 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
212
394 þ.kr./m2
27.200.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin