Jason Kristinn Ólafsson fasteignasali í síma 7751515 og Betri Stofan fasteignasala kynna: Suðurmýri 28 á Seltjarnarnesi sem er 216.6 fm. endaraðhús á tveimur hæðum með fimm svefnherbergjum, tveimur stofum og sjónvarpsholi. Húsið er 216,6 fm. Þar af bílskúr 26.8 fm. Björt og vinsæl eign á góðum stað í Mýrinni og í næsta nágrenni við Eiðistorg og vesturbæinn.
Nánari lýsing: Gengið er inn á neðri hæð hússins og komið inn í forstofu með flísum á gólfi og fataskáp. Gestasnyrting er frá anddyri sem og þvottahús með glugga. Úr forstofu er komið inn í rúmgott hol. Úr holi til hægri er gengið upp teppalagðan stiga á efri hæð hússins, til vinstri inn í eldhús, sjónvarpshol og rúmgott herbergi og beint áfram inn í borðstofu með sólhúsi og neðri betri stofu með mikilli lofhæð og kamínu. Eldhúsið er með eldri Alno innréttingu, efri og neðri skápar. Léttur veggur er á milli borðstofu og herbergis sem auðvelt er að fjarlægja og bæta við þriðju stofunni. Borðstofan er með útgengi í bakgarðinn og þaðan í sameiginlegan garð sem er sameign húsanna í hringnum. Gott útivistar- og leiksvæði er í þessum sameiginlega garði.
Á efri hæð er teppalagt hol með mikilli lofthæð. Fjögur rúmgóð svefnherbergi eru á hæðinni, öll með góðri lofthæð og vinyl dúk á gólfi. Gengið út á svalir úr einu herberginu og þaðan er sjávarútsýni á milli Tjarnarbóls og Tjarnarstígs. Flísalagt baðherbergi með mikilli lofthæð og þakglugga er á hæðinni og bæði sturta og baðkar.
Bílskúrinn er með geymslulofti, grunnflötur 26.8 fm. og nýtist betur v. geymslusvæðis. Hellulagt bílaplan með hitalögn að hluta er framan við húsið. Húsið er bæði barn og hundvænt því auðvelt er að girða bakgarðinn af. Fallegur vel hirtur gróður í garði bæði framan og aftan við húsið sem stendur aðeins innar en önnur hús í lengjunni.
Stutt í helstu þjónustu, skóla, leikskóla, tónlistarskóla, heilsugæslu, sundlaug Seltjarnarness og íþróttasvæði bæði Gróttu og KR. Örstutt er á milli allra þessara stofnana og auðvelt að ganga. Á Eiðistorgi er matvöruverslun, bókasafn, apótek o.fl.
Seltjarnarnes er ein best geymda útivistarparadísin á höfuðborgarsvæðinu. Hjóla og göngustígar liggja allan hringinn á Nesinu og áhersla á gott aðgengi svo að sem flestir geti notið náttúrunnar.
Allar upplýsingar veita: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515, jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.