!!!!!!!!!!!!!!!!!! EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA !!!!!!!!!!!!!!!!
Virkileg falleg og björt 3ja herbergja íbúð með útsýni á 6.hæð í góðu fjölbýlishúsi með lyftu. Eignin samanstendur af forstofu, tveimur svefnherbergjum, stofu, eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi sem er innan eignar, sér geymslu í sameign og stæði í bílageymslu. Samkvæmt Þjóðskrá Ísland er íbúðin 96,0 fm og þar af er sér geymsla íbúðar 5,4 fm.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Úlfar Hrafn Pálsson löggiltur fasteignasali í síma 623-8747, ulfar@remax.is eða Páll Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 861-9300, pallb@remax.is
Nánari lýsing:Forstofa: með góðum nýlegum fataskáp og parket á gólfi
Eldhús hefur hvíta nýlega fallega innréttingu og með gott skápapláss, helluborð, ofn og gufugleypi. Stæði er fyrir ísskáp og uppþvottavél. Parket á gólfi.
Stofan er björt og rúmgóð í opnu rými með eldhúsi, útgengt á svalir með opnanlegri svalalokun.
Hjónaherbergi: mjög rúmgott, góður fataskápur með miklu skápaplássi. Parket á gólfi
Svefnherbergi: rúmgott með nýlegum fataskáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi: með snyrtilega innréttingu, sturtklefa og upphengt klósett. Flísar á gólfi og að hluta veggjar
Þvottahús hefur tengi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt vinnuborði, skápum og vaski.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í sameign á jarðhæð.Gott malbikað bílaplan er við húsið og mörg bílastæði
einnig fylgir stæði í bílageymslu með íbúðinni.Framkvæmdir íbúð skv seljanda:- Nýtt parket lagt á alla íbúðina fyrir utan baðherbergi og þvottahús (2022)
- Eldhús tekið í gegn. Veggur tekinn til að opna alveg inn í stofu. Sett nýja innréttingu og tæki (2022)
- Baðherbergi tekið í gegn - Nýjar flísar, innrétting, blöndunartæki, sturta og klósett (2022)
- Nýjir fataskápar settir í forstofu og svefnherbergi (2023)
- Gluggar - sumar 2024 (skipt um tvær rúður í stærra svefnherbergi)
Nánasta umhverfi: Lindaskóli og leikskólinn Núpur eru ofar í götunni og því er örstutt að ganga í skólana. Við skólann er stórt leiksvæði, með fótboltavelli og skólahreystibraut. Einnig er grænt svæði með gönguleiðum þar fyrir ofan. Stutt er í alla helstu þjónustu, Krónan, Smáratorg og Smáralind í göngufæri ásamt því að stutt er í sundlaugina við Versali.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.