Atvinnueign kynnir til leigu: 536,5 fm verslunarhúsnæði að Byggðavegi 98 á Akureyri sem áður hýsti Krambúðina.
Um er að ræða verslunarhúsnæði á frábærum stað í grónu hverfi með bílastæði við inngang. Efri hæð hússins er skráð 290,4 m2. Húsnæðið hýsti áður verslun Krambúðarinnar en kælar geta fylgt. Á hæðinni er baklager ásamt minni vörumóttöku á norðaustur hluta hússins. Neðri hæð hússins er skráð 246,1 m2. Stór og mikill lager með góðri vörumóttöku ásamt starfsmannaðastöðu, búningsklefum, salerni og tæknirými. Vörulyfta er á milli hæða. Tækifæri er að breyta húsnæðinu fyrir annarskonar rekstur en þar hefur verið.
Laust eftir samkomulagi. VSK bætist við leiguverð. Allar nánari upplýsingar veita:
Ólafur Ingi Guðmundsson, löggiltur fasteignasali og leigumiðlari, í síma
847-7700 eða
olafur@atvinnueign.is Halldór Már Sverrisson viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali í síma 898 5599 eða
halldor@atvinnueign.isÁ vefsíðu okkar getur þú fundið fleiri eignir sem og kynnt þér þjónustu Atvinnueigna ehf,
www.atvinnueign.is - Atvinnueignir eru okkar fag -