Hólmvað 46, 172.4 fm fallegt velskipulagt raðhús á 2 hæðum með innbyggðum bílskúr. Mjög góð lofthæð á efri hæð. 4 svefnherbergi, stofa og borðstofa, vandað flísalagt baðherbergi. Stórar svalir af efri hæð og stór afgirt timburverönd á neðri hæð með hitaveitupotti. Hellulagt bílaplan með hitalögn. Gott útsýni. Bókið skoðun : Þórarinn sími
899-1882 eða thorarinn@eignamidlun.is
Eignin
er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Fastanr.
228-6756, nánar tiltekið eign merkt 01-01. Neðri hæð er skráð 63,9 fm, efri hæð er skráð 79,8 fm og bílskúrinn er skráður 21,9 fm en innaf bílskúr er teiknuð sérgeymsla 6,8 fm sem ekki hefur verið stúkuð af þannig að bílskúrinn er því 28,7 fm. , birt heildarstærð 172.4 fm. Svalir eru út frá borðstofu efri hæðar til suðvesturs og eru skráðar 13,4 fm. Út frá neðri hæð er mjög stór timburverönd afgirt með heitum potti (hitaveitupottur)
Eignin skiptist í:
NEÐRI HÆÐ: Forstofa, hol, þvottahús, baðherbergi og tvö svefnherbergi
EFRI HÆÐ: Stórt alrými sem er eldhús , stofa og borðstofa og að auki tvö svefnherbergi.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.Nánari lýsing eignarinnar: Hellulagt upphitað bílaplan.
SÉRINNGANGUR:
FORSTOFA/HOL. Flísalögð forstofa og hol með skápum.
ÞVOTTAHÚS: Ágætlega rúmgott flísalagt þvottahús með innréttingu og handklæðaofni.
BAÐHERBERGI: Vandað endurnýjað flísalagt baðherbergi með góðri innréttingu, vegghengdu salerni og "walk in"sturtu.
HERBERGI I: Rúmgott hjónaherbergi parketlagt og með góðum skápum.
HERBERGI II: Herbergi með parketi. Út frá neðri hæð er mjög stór timburverönd afgirt með heitum potti (hitaveitupottur) Steyptur stigi milli hæða:
ALRÝMI: ELDHÚS: Opið eldhús með sprautulakkaðri innréttingu, eldaeyja. BORÐSTOFA: Við útsýnisglugga, gengið út á stórar svalir í suðvestur. STOFA: Rúmgóð parketlögð stofa. Hátt er til lofts í alrýminu.
HERBERGI III: Herbergi með parketi.
HERBERGI IIII: Rúmgott herbergi með parketi og skápum.Nýlegt þak er á húsinu þ.e járn og pappi. Frábær staðsetning í grónu hverfi.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn M. Friðgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma
899-1882, tölvupóstur thorarinn@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma
588-9090