Fimmtudagur 17. september
Fasteignaleitin
Opið hús:22. sept. kl 18:00-18:30
Skráð 17. sept. 2026

Gefjunarbrunnur 11

ParhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarholt og Úlfarsárdalur-113
132.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
Verð
114.900.000 kr.
Fermetraverð
866.516 kr./m2
Fasteignamat
79.150.000 kr.
Mynd af Elka Guðmundsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Fasteignasali
Byggt 2022
Garður
Svalir
Fasteignanúmer
2519518
Landnúmer
206020
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
02
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Elka lgf., s. 863-8813, og Fasteignasalan TORG kynna bjarta og vel skipulagða 132,6 fm efri sérhæð í parhúsi við Gefjunarbrunn 11 í Reykjavík.
Eignin skiptist í 129,1 fm íbúð og 3,5 fm sérinngang. Íbúðin er með rúmgóðu eldhúsi, stofu og borðstofu í opnu alrými, þremur svefnherbergjum, geymslu innan íbúðar, baðherbergi, þvottahúsi og svölum.
Gengið er inn um sérinngang á jarðhæð og þaðan liggur teppalagður stigi upp í íbúðina. Á efri hæð tekur við bjart og rúmgott miðrými sem tengir saman helstu rými eignarinnar.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.

Nánari lýsing:
Gengið er upp teppalagðan stiga uppí bjart og opið alrými íbúðarinnar.
Stofa, borðstofa og eldhús mynda bjart og rúmgott alrými með stórum gluggum til þriggja átta. Úr stofu er útgengt á svalir.
Eldhús er með dökkum innréttingum og góðu skápa- og vinnuplássi. Flísar eru á gólfi eldhúss.
Svefnherbergin eru þrjú og öll björt og rúmgóð. Hjónaherbergi er sérlega rúmgott, með gluggum til tveggja átta og fallegu útsýni. Hin svefnherbergin eru einnig rúmgóð og björt. Þriðja svefnherbergið hefur verið útbúið í rými sem merkt er sem borðstofa á grunnmynd.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf og með dökkri innréttingu, handlaug, upphengdu salerni og baðkari með sturtuaðstöðu og glerþili. Gluggi er á baðherberginu.
Þvottahús er innan íbúðar og búið dökkum innréttingum, vinnuborði og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er innan íbúðar.

Um er að ræða bjarta, vel skipulagða og fjölskylduvæna eign með þremur svefnherbergjum á vinsælum stað í Úlfarsárdal. Samkvæmt fasteignaskrá er húsið byggt árið 2022 en íbúðin var fullkláruð að innan í september 2026.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Veghús 31
Bílskúr
Skoða eignina Veghús 31
Veghús 31
112 Reykjavík
114.2 m2
Fjölbýlishús
514
656 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Brattahlíð 24
Bílskúr
Á einni hæð
Hleðslustöð
Skoða eignina Brattahlíð 24
Brattahlíð 24
270 Mosfellsbær
127.1 m2
Raðhús
312
980 þ.kr./m2
124.500.000 kr.
Skoða eignina Brattahlíð 26
Á einni hæð
Skoða eignina Brattahlíð 26
Brattahlíð 26
270 Mosfellsbær
129.3 m2
Raðhús
312
958 þ.kr./m2
123.900.000 kr.
Skoða eignina Fróðengi 14
Bílskúr
Opið hús:22. sept. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Fróðengi 14
Fróðengi 14
112 Reykjavík
136 m2
Fjölbýlishús
413
588 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin