Fimmtudagur 22. október
Fasteignaleitin
Skráð 21. okt. 2026

Smáragata 10

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
375.6 m2
9 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
285.400.000 kr.
Brunabótamat
163.620.000 kr.
Mynd af Marta Jónsdóttir
Marta Jónsdóttir
Lögfræðingur
www.sunnafast.isEignalisti
Byggt 1931
Garður
Svalir
Pallur
Bílskúr
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2009296
Landnúmer
102741
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki vitað um vandamál
Raflagnir
Ekki vitað um vandamál
Frárennslislagnir
Ekki vitað um vandamál
Gluggar / Gler
Ekki vitað um vandamál
Þak
Ekki vitað um vandamál
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Þrennar svalir
Upphitun
Gólfhiti. Endurnýjaður
Inngangur
Margir inngangar
Sunna fasteignasala og Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., kynna einstaklega glæsilegt einbýlishús við Smáragötu 10, 101 Reykjavík.

Um er að ræða einstakt hús sem hefur verið mikið endurnýjað. Húsið er 375,6 fm að stærð og er á frábærum stað við Smáragötu. Stór endurnýjaður garður er við húsið en hann snýr til suð-vesturs og er með fallegum gróðri og veröndum með skjólveggjum, auk úti saunu. Garðurinn var tekinn í gegn árið 2023 og var m.a. jarðvegsskiptur, hellulagt var við hlið hússins, nýr gróður gróðursettur, og saunu komið fyrir. Auk þess var nýtt grindverk sett upp á milli húsa.

Eignin er á þremur hæðum og eru allar innréttingar sérsmíðaðar. Henni fylgja vönduð eldhústæki og gólfefni ásamt blöndunartækjum og sérsniðnum gardínum. Allt húsið er er handmálað með kalkmálingu og parketlagt með olíubornum aski. Gardínur eru sérsaumaðar fyrir húsið og úr 100% hör. Gólfihiti er í öllu húsinu og allar lagnir hafa verið endurnýjaðar, sem og stýrikerfi. Íbúðarhlutinn er skráður 351,8 fm og bílskúrinn er 23,8 fm.

Nánari lýsing:
Miðhæð

Gengið er inn í húsið á miðhæðinni. Þar eru tvennir inngangar. Hefðbundinn inngangur á framhlið hússins þar sem er lítil forstofa, og annar á hlið hússins þar sem gengið er inn í stórt fatahengi með nægu rými fyrir útifatnað. Á hæðinni er eldhús, eldhúskrókur og borðstofa í sama rými, setustofa, og gestasalerni.
Eldhúsinréttingin er sérsmíðuð úr timbri úr 200 ára gamalli norskri hlöðu og borðplatan er kvartsít plata með innbyggðu skurðarbretti. 
Eldhúsið er útbúið með SMEG eldavél og ofni, Liebherr tvöföldum ísskáp, Miele uppþvottavél og tvöföldum viðarvaski með Axor blöndunartækjum. Frá borðkrók er útgengt út í skjólsælan garð með verönd, skjólveggjum og saunu. Borðstofan er með fallegum arni sem einnig snýr inn í setustofu með fallegum sérsmíðuðum bókahillum (sami viður og eldhúsinnrétting), sófinn er sérhannaður í plássið og fylgir eigninni. 

Efri hæð 
Gengið er upp afar glæsilegan stiga. Þrjú mjög rúmgóð svefnherbergi eru á hæðinni, en eitt þeirra er nýtt í dag sem "screening room" sem útbúið er til að horfa á kvikmyndir í hæstu gæðum með góðu hljóði.Barnaherbergið er með mjög stórt og þaðan er útgengt á svalir. Hjónasvítan er með útgengi út á svalir, rúmgóðu fataherbergi og glæsilegu baðherbergi. Steinbaðkar ásamt steinvöskum og Axor blöndunartækjum. Sturtan er opin og innréttingin er sérsmíðuð. Listaverk úr útskornu járni er í gluggum sem gefa fallega birtu inn á baðherbergið. 

Neðri hæð
Stúdíó íbúð er á neðri hæð. Hún er útbúin með eldhúsi, salerni, sturtu og hálflokuðu svefnherbergi ásamt fataherbergi með sérsmíðuðum hirslum. Innréttingin er sérsmíðuð með innbyggðum tækjum og borðplatan er endurunnin úr gamla gólfinu í keiluhöllinni ásamt fleiri innréttingum í kjallara. 
Rúmgott þvotthús með sérsmíðaðri innréttingu. Þrjár geymslur er á neðri hæðinni og ein þeirra er innaf þvottahúsi en sú geymsla er með kælikerfi og hentar til dæmis sem vínkjallari.

Bílskúr hefur ekki verið uppgerður en teikningar af stækkun eru til.

Þetta er einstök eign í virðulegu húsi þar sem engu hefur verið til sparað.
Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., í síma 8633445 og netfanginu marta@sunnafast.is.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
08/04/2026285.400.000 kr.142.700.000 kr.375.6 m2379.925 kr.Nei
26/11/2021152.500.000 kr.252.000.000 kr.375.6 m2670.926 kr.Já
15/04/200958.780.000 kr.122.500.000 kr.375.6 m2326.144 kr.Nei
24/08/200752.720.000 kr.90.000.000 kr.375.6 m2239.616 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1944
23.8 m2
Fasteignanúmer
2009296
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
9.770.000 kr.

Myndir (68)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Langagerði 5
Skoða eignina Langagerði 5
Langagerði 5
108 Reykjavík
351 m2
Einbýlishús
846
627 þ.kr./m2
220.000.000 kr.
Skoða eignina Norðurfell 9
3D Sýn
Skoða eignina Norðurfell 9
Norðurfell 9
111 Reykjavík
379,4 m2
Raðhús
1139
448 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Skoða eignina Meðalholt 11
Skoða eignina Meðalholt 11
Meðalholt 11
105 Reykjavík
77,3 m2
Fjölbýlishús
413
891 þ.kr./m2
68.900.000 kr.
Skoða eignina Mánatún 17 í búð 214
Bílastæði
Mánatún 17 í búð 214
105 Reykjavík
124 m2
Fjölbýlishús
312
886 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin