SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
GLÆSILEGA VILLU Í MEÐ FRÁBÆRU GOLFÚTSÝNI VIÐ LAS COLINAS GOLFVÖLLINN.
Einstök og falleg villa á eftirsóttum stað á Costa Blanca, við Las Colinas golfvöllinn. Hér er um að ræða rúmgóða og vel skipulagða eign með miklu næði og einstöku útsýni yfir golfvöllinn og fallegt umhverfi.
Húsið er alls 250 m² og stendur á stórri og vel skipulagðri 2.000 m² lóð, sem tryggir ró, næði og fallegt umhverfi.
ALLAR UPPLÝSINGAR GEFA:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. 00354 893 2495.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is. 0034 615 112 869.
FRÁBÆRT SKIPULAG:
Björt og rúmgóð stofa, borðstofa og eldhús mynda fallegt og opið alrými með mikilli birtu og góðri tengingu við útisvæði.
Eignin skiptist á tvær hæðir og býður upp á:
4 rúmgóð svefnherbergi
3 baðherbergi
Gestasnyrtingu
Á aðalhæð eru þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi og gestasnyrting.
Á neðri hæð er glæsileg hjónasvíta með fataherbergi, sérbaðherbergi og einkaverönd með tröppum upp að sundlaugarsvæði.
Bílastæði inni á lokaðri lóð, þar sem mögulega væri hægt að gera bílskúr.
ÚTISVÆÐI OG LÍFSSTÍLL:
Eignin býður upp á:
Fallega infinity sundlaug með útsýni yfir golfvöllinn
Rúmgóðar verandir
Notalegan og gróinn bakgarð
Bílastæði fyrir tvo bíla
Hér er um að ræða eign sem hentar fullkomlega til að njóta lífsins í rólegu og fallegu umhverfi, hvort sem er til eigin nota eða móttöku gesta.
EINSTÖK STAÐSETNING:
Villan er staðsett á svokallaðri “golf-eyju” Las Colinas, þar sem lúxus einbýlishús eru umkringd af golfvellinum sjálfum.
Las Colinas er lokað og öruggt svæði með:
Aðgangsstýringu
24 tíma öryggisgæslu
Einstöku náttúrulegu umhverfi
Svæðið er þekkt fyrir:
Verðlaunaðan golfvöll
Íþróttaaðstöðu
Veitingastaði
Göngu- og útivistarsvæði
EIN AF SJALDGÆFARI EIGNUM Á LAS COLINAS SVÆÐINU, ALGJÖR GULLMOLI.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði ef af viðskiptum verður.
ÖRUGG KAUP OG REYNSLA:
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001:
✔ tryggir þekkingu
✔ öryggi
✔ reynslu
KOSTNAÐUR VIÐ KAUP:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði
ca. 3% annar kostnaður
samtals um 13%
EIGINLEIKAR: golf, stór lóð, infinity sundlaug, verönd, bílastæði,
SVÆÐI: Costa Blanca, Las Colinas,