Valborg fasteignasala kynnir í einkasölu parhúsaíbúð við Heiðmörk 72, 810 Hveragerði.
Um er að ræða 3ja herbergja íbúð á þremur pöllum auk bílskúr sem innangengt er í úr íbúð.
Eignin skiptist í anddyri, stofu, eldhús, tvö herbergi, baðherbergi og bílskúr. Suðurgarður með skjólgóðum palli.
Eignin er skráð 139.0 m² samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands, þ.a. er bílskúr 22 m².
Stutt er í alla helstu þjónustu svo sem leik- og grunnskóla, verslun og þjónustu.
Sjá staðsetningu hér.
Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is. Nánari lýsing:
Andyrri er á miðhæð hússins.
Svefnherbergi þar við hliðina sem bætt var við nýlega og eldhús þar með minnkað.
Eldhús einnig á sömu hæð, innrétting með ofni, innbyggðu örbylgjuofni, vaski og tengi fyrir uppþvottavél. Eyja með helluborði. Hátt til lofts, gluggar til norðurs.
Hjónaherbergi er á efri palli en það er rúmgott, fataskápur, gluggar til suðurs,
Hol er fyrir framan hjónaherbergi sem gera mætti að notalegri setstofu eða leikrými.
Stofa er palli neðar en aðalhæð, bjart rými með glugga til suðurs.
Hol er inn af stofu en úr því er innangengt í bílskúr, baðherbergi og út á suðurpall/garð.
Baðherbergi er rúmgott, góð innrétting með handlaug, upphengt wc, sturtuklefi og baðkar.
Bílskúr er skráður 22 m², nýleg flekahurð.
Garður er á þrjá vegu hússins, steypt gönguleið frá götu að útidyrahurð,
pallur á suðurhlið hússins en garðurinn annars grasi vaxinn og girtur að miklu leyti.
Gólfefni hússins eru
flísar á anddyri og baðherbergi,
parket á öðrum rýmum.
Nýlegar endurbætur (frá 2020), að sögn seljanda:
Timburklæðning hússins endurnýjuð.
Bílskúrshurð endurnýjuð.
Herbergi reist á aðalhæð hússins og nýtt gólfefni á því.
Ný eldhúsinnrétting ásamt tækjum, ný gólfefni.
Útiljós sett í garð.
Að sögn fyrri eigenda var sumarið 2020 nýlega búið að endurnýja alla glugga og útvegg á suðurhlið hússins, en þar væru einnig nýjar ofnalagnir og raflagnir.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.