Betri Stofan Fasteignasala og Dagrún Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali kynna vel skipulagða og bjarta 86fm útsýnisíbúð með sérinngangi. Tvö sérmerkt bílastæði fylgja eigninni, annað í opinni bílageymslu og eitt á bílaplani. Afar rúmt er um íbúðina. Fallegt útsýni til suðurs úr stofu og til norðurs úr herbergjum. Gengið út á stórar og rúmgóðar suðursvalir (12,3fm) úr stofu. Eignin skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, hol, þvottahús, baðherbergi og alrými með samliggjandi stofu og eldhúsi, sérgeymsla í kjallara ásamt sérmerktu bílastæði í opinni bílageymslu. Mjög góð staðsetning í Grafarvoginum með leik-, grunn- og framhaldsskóla, fjölbreytta þjónustu í Spönginni ásamt afþreyingar og íþróttamiðstöðinni Egilshöll í göngufæri. Nánarí lýsing:
Anddyri: Gengið inn um sérinngang í anddyri. Flísar á gólfi.
Hol: Tengir saman öll rými íbúðar.
Svefnherbergi I: Rúmgott með góðu skápaplássi, parket á gólfi.
Svefnherbergi II: Fataskápur. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Bað með sturtu, klósett ásamt baðinnréttingu með skápum, vask og spegli fyrir ofan vask. Flísar á gólfi og á veggjum við bað og sturtu.
Þvottaherbergi: Sér þvottaherbergi innan íbúðar með vask og upphengdum hillum.
Eldhús: Innrétting með góðu skápa og geymsluplássi. Skipt var um borðplötu, helluborð og vask/blöndunartæki 2023. Flísar á gólfi.
Stofa: Rúmgóð og björt. Góð tenging við eldhús. Útgengt út á rúmgóðar suðursvalir. Parket á gólfi
Geymsla: Sérgeymsla í kjallara. 5,7fm.
Bílastæði: Sérmerkt bílastæði í opinni bílageymslu ásamt sérmerktu bílastæði á bílaplani.
Sameign: Hjóla- og vagnageymsla í kjallara hússins.
Garður: Stór sameiginlegur tyrfður garður sunnanmegin við húsið
Góð og vel skipulögð 3 herbergja útsýnisíbúð í rólegu og fjölskylduvænu hverfi í Grafarvoginum með leik-, grunn og framhaldsskóla í göngufjarlægð ásamt fjölbreyttri verslun og þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veitir Dagrún Davíðsdóttir í síma 866-1763 / dagrun@betristofan.isEignin Gullengi 39 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 221-3891, birt stærð 86.0 fm.Nánari upplýsingar veitir Dagrún Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali, í síma
866 1763, tölvupóstur dagrun@betristofan.is.