Mánudagur 8. júní
Fasteignaleitin
Skráð 24. feb. 2025

Eskihlíð 22

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
64 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
57.900.000 kr.
Fermetraverð
904.688 kr./m2
Fasteignamat
57.250.000 kr.
Brunabótamat
35.700.000 kr.
Mynd af Hafdís Rafnsdóttir
Hafdís Rafnsdóttir
Fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2030461
Landnúmer
107102
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
00
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
ástand ekki vitað
Raflagnir
dregið í nýtt í íbúð ca 2014
Frárennslislagnir
skolp fóðrað 2014
Gluggar / Gler
tvöfalt gler
Þak
þak yfirfarið og málað 2017
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignasalan TORG kynnir til sölu fallega 64 fermetra 3ja herbergja íbúð í kjallara í Eskihlíð í Reykjavík. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu og eldhús í alrými, tvö svefnherbergi, baðherbergi og sérgeymslu í sameign. Árið 2021 var gólfefni endurnýjað á aðalrýmum og 2022 flísar á gólfi á baðherbergi og þá var einnig stigagangur málaður og skipt um teppi. Eftirsótt staðsetning þar sem stutt er í heilsugæslu, leikskóla ásamt grunn og menntaskóla. Einnig eru miðbær, kringlan og nauthólsvík öll í göngufæri. Tilvalin fyrstu kaup! Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is- Sækja söluyfirlit HÉR

Nánari lýsing. Forstofa: Komið er inn á forstofu, hol með með harðparketi á gólfi og tveimur fataskápum/geymslum.
Eldhús og stofa mynda alrými með harðparketi á gólfum og hvíttlakkaðri innréttingu með nýlegum vaski og blöndunartækjum og tengi fyrir uppþvottavél. Bakaraofn og helluborð með háf yfir.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með harðparketi á gólfi og í hjónaherbergi er þrefaldur fataskápur sem fylgir með.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og á veggjum að hluta ásamt innréttingu og baðkari með sturtuaðstöðu og opnanlegum glugga.
Sérgeymsla er í sameign sem fylgir eigninni.
Sameign Er snyrtileg, skipt var um teppi og hún máluð 2021. Í kjallara er hjóla- og vagnageymsla, auk sameiginlegs þvottahúss. Hitakompa er nýtt sem dekkjageymsla. Falleg eign og hentug fyrstu kaup. 

Yfirlit yfir helstu framkvæmdir á íbúð og húsi:
Fyrir ca 10 árum voru innréttingar í eldhúsi, eldhús og hluti af baði endurnýjuð, á sama tíma var dregið nýtt rafmagn í íbúð. Árið 2014 var aðalskolplögn endurnýjuð/fóðruð. Eldhús var fært í alrými og annað svefnherbergið var áður eldhús. 
2017 Þak yfirfarið og málað 
2018 Sameign og kjallari yfirfarin og máluð 
2019 Skipt út gleri í íbúð, fyrir utan baðherbergi og máluð að innan. 
2020 Að utan: Húsið er steinað og yfirfarið 2020, múrviðgert, málað og skipt var um þá glugga sem þurfti. 
2021 skipt um gólfefni á íbúð
2022 flísar settar á gólfi á baðherbergi og stigagangur málaður og skipt um teppi.

Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan TORG bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
04/01/202134.900.000 kr.36.900.000 kr.64 m2576.562 kr.
26/07/201724.300.000 kr.31.500.000 kr.64 m2492.187 kr.
22/01/200815.470.000 kr.17.400.000 kr.64 m2271.875 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (17)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hrísmóar 6
Opið hús:11. júní kl 17:30-18:00
Skoða eignina Hrísmóar 6
Hrísmóar 6
210 Garðabær
118.9 m2
Fjölbýlishús
312
731 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Lofnarbrunnur 1
Rétt mynd.jpg
Skoða eignina Lofnarbrunnur 1
Lofnarbrunnur 1
113 Reykjavík
159.5 m2
Fjölbýlishús
423
720 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Beykidalur 4
Skoða eignina Beykidalur 4
Beykidalur 4
260 Reykjanesbær
70 m2
Fjölbýlishús
211
713 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Pósthússtræti 1
Bílastæði
Pósthússtræti 1
230 Reykjanesbær
129.1 m2
Fjölbýlishús
312
670 þ.kr./m2
86.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin