ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina Sunnubraut 19, birt stærð 157.3 fm. Einbýlishús á tveimur hæðum ásamt búið er að breyta bílskúr í íbúðarrými og er hún í útleigu í dag.
Eignin er mjög vel staðsett, ein mínúta í göngufæri í Vatnaveröld og Holtaskóla. Framhaldsskóli Suðurnesja í mjög stuttu göngufæri ásamt Reykjaneshöll.
Tekur eru af auka íbúð, eignin hefur tvö salerni. Sólpallur í suður. Auðvelt er að vera með fimm svefnherbergi innan eignar til viðbótar við útleiguíbúð.Nánari upplýsingar veitir: Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur pall@allt.is.Nánari lýsing eignar:
Eignin er á tveimur hæðum, neðrihæð saman stendur af:
Forstofa: Físalögð, fatahengi er undir stiga.
Stofa og borðstofa parketlögð og með glugga á tvo vegu.
Baðherbergi: er flísalagt, baðkar með sturtuaðstöðu. Salerni og vaskur.
Sjónvarpsherbergi/herbergi er rúmgott og parketlagt. Getur verið 5.svefnherbergið.
Eldhús: með lakkaðri innrétting, parket á gólfi.
Þvottahús flísalagt og
innangengt frá eldhúsi og útgengni út á baklóð
Efri hæð eignar skiptist í fjögur svefnherbergi og salerni:
Hjónaherbergi er rúmgott með fataherbergi og parketi á gólfi.
Herbergi I er með parketi.
Herbergi II er með parketi. Geymslupláss undir súð.
Herbergi III er með parketi. Geymslupláss undir súð.
Salerni með vaska innréttingu.
Efrihæðin var endurnýjuð árið 2025, parket og hurðar.
Bílskúr var breytt í íverurými árið
2025 og
er í útleigu í dag. Saman stendur að alrými. Baðherbergi með salerni, vaskaskáp og sturtu ásamt svefnherbergi.
Húsið stendur á 570 fm lóð, sólpallur í suður. Möguleiki er að fjölga herbergjum. Upprunanlegt skipulag voru tvö svefnherbergi þar sem stofa og borðstofa er í dag og sjónvarpshol var stofa.
Góðar leigutekjur.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.