Fasteignasalan TORG og Margét Rós lgf. kynna í sölu fallega og nokkuð endurnýjaða 4ra herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi ásamt rúmgóðri afgirtri timburverönd og sérmerktu bílastæði í opnu bílskýli við Reyrengi 2, í Reykjavík. Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og samliggjandi stofu og borðstofu með útgengi á timburverönd. Sérgeymsla æu sameign og sérmerkt bílastæði í opnu bílskýli fylgir eigninni. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós Löggiltur fasteignasali í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is *** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR ***Um er að ræða bjarta og vel staðsetta eign á barnvænum stað í Grafarvogi. Göngufæri er í leik- og grunnskóla, ásamt Borgarholtsskóla, sem og alla helstu verslunar- og þjónustu við Spöngina í Grafarvogi. Frábærar gönguleiðir eru í næsta nágrenni ásamt margskonar íþróttastarfsemi og afþreyingu í Egilshöll. Þetta er eign sem vert er að skoða.Birt stærð eignar skv. fasteignaskrá HMS er 97,3 m², þar af er íbúð skráð 92,6 m² og sér geymsla 4,7 m² staðsett í sameign á jarðhæð. Nánari lýsing:Forstofa er flísalög með skápum.
Hol/gangur er parketlagt og tengir saman önnur rými íbúðar.
Eldhús er með fallegri innréttingu með góðu skápaplássi. Helluborð, vaskur, blástursofn og gert ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu og stæði fyrir ísskáp.
Stofa/Borðstofa eru samliggjandi með parket á gólfi, útgengt á stóra afgirta timburverönd til suðausturs.
Svefnherbergi (I) er rúmgott og parketlagt hjónaherbergi með fataskápum.
Svefnherbergi (II) er rúmgott parketlagt barnaherbergi með fataskáp.
Svefnherbergi (III) er inn af stofu, rúmgott og parketlagt með fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt með fallegri innréttingu við vask, upphengdu salerni, sturtu og handklæðaofni. Tengi er fyrir þvottavél/þurrkara og gluggi með opnanlegu fagi.
í Sameign eru sér geymslur fyrir hverja íbúð, geymsla merkt
01-08 sem tilheyrir þessari eign er
4,7 m². Eins er rúmgóð
vagna- og hjólageymsla ásamt sameiginlegri geymslu fyrir húsið.
Bílastæði er sérmerkt í opinni bílageymslu
Endurbætur á íbúð og séreign að sögn seljanda:- Eldhús uppgert að hluta, m.a. skipt um vask (2021)
- Nýr sólpallur/timburverönd byggð (2022)
- Búið að setja upp rafhleðslustöð við stæði íbúðar í bílskýli.
Endurbætur á húsi og sameign að sögn seljanda:- Farið var í umfangsmiklar viðhaldsframkvæmdir á ytra byrði hússins (2022-2024)
- Þakrennur og niðurföll endurnýjuð (2022)
- Skipt um gler í stofuglugga (2022)
- Skipt um gler í forstofu (2022)
ERTU Í SÖLUHUGLEIÐINGUM? SMELLTU HÉR FYRIR FRÍTT VERÐMATHér er um að ræða vel skipulagða og fjölskylduvæna eign með sérinngangi, góðu útisvæði og bílastæði í bílskýli á eftirsóttum stað í Grafarvogi. Eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar veita:Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s.
856-5858 /
margret@fstorg.isAðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s.773-3532 / adalsteinn@fstorg.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.