Gimli fasteignasala og Sigþór Bragason lögg.fasteignasali sími 899 9787 kynna: Stórglæsileg og vel innréttuð 199 m² eign á efstu hæð. 149 m² íbúðarhluti og tveir 25 m.² ( samtals 50m²) bílskúrar og 3 einkastæði í bílageymslu. Fjögur svefnherbergi og stórar stofur. Stór þak verönd sem er um 48 m.² Eign sem er sérlega vel innréttuð með fallegum og vönduðum innréttingum. Einstök eign á frábærum stað við óspillta náttúru
Nánari lýsing :
Anddyri með fallegum fataskáp.
Rúmgott opið stofu og eldhúsrými með gluggum á þrjá vegu.
Í Eldhúsi er stór eyja með steinplötum, helluborði, vínkæli og fínu skápaplássi. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél í innréttingu. Auk þess er bakaraofn og örbylgjuofn. Vandaðar Innréttingar frá Voke III.
Rúmgóð og björt stofa með gluggum á þrjá vegu og vönduðu eikarparketi frá Birgisson á gólfi,
Frá stofu er útgengt út á svalir og einnig í sólstofu. Hægt er að opna hlið sólstofunnar út á þak veröndina sem er um 48 m² að stærð, útieldhús fylgir með.
Breiður parketlagður herbergjagangur.
Hjónaherbergið er mjög rúmgott og inn af því er gott fataherbergi og sér baðherbergi, baðherbergið er flísalagt á gólfi og veggjum að hluta, upphengt salerni með innfelldum vatnskassa. Sturta með gler sturtuskjóli. Úr hjónaherbergi er útgengt á svalir. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingunni.
Þrjú önnur rúmgóð svefnherbergi með fataskápum og eikarparketi eru við herbergjaganginn.
Baðherbergi 2 er við herbergjaganginn, flísalagt á gólfi og veggjum að hluta. Flísalögð sturta með glerskilrúmi.Upphengt salerni með innfelldum vatnskassa. Á Baðherbergi er innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Íbúðinni fylgir tveir 25 m² inn af bílageymslunni og þrjú bílastæði framan við þá.
Geymsla 5,6 fm í kjallara.
Þetta er sérlega vönduð eign sem mikið er lagt í.
Vandaðar innréttingar og ná skápar að lofti.
Eikarparket frá Birgisson á gólfi.
Tvennar svalir og stór þakverönd.
Hverfið Norðlingaholt er staðsett í nágrenni við Elliðavatn. Stutt er í öll helstu útivistarsvæði Reykjavíkur, Heiðmörk, Elliðaárdal, Rauðavatn og Rauðhóla. Mikill fjöldi stíga bæði fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur auk þess sem reiðstígar umlykja hverfið. Grunn- og leikskólar eru í göngufjarlægð frá Elliðabraut en hverfið er byggt utan um Norðlingaskóla.
Þetta er sérlega glæsileg eign sem mikið er lagt í á frábærum stað. Tveir bílskúrar innaf bílageymslu og þrjú sér bílastæði í bílageymslu.
Nánari upplýsingar veitir Sigþór Bragason, löggiltur fasteigna, fyrirtækja og skipasali, í síma 899 9787, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti á sb@gimli.is
Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnaði því 43 ára starfsafmæli á árinu 2025. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli gerir betur...
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.