** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 ** Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: 194,9 m2 einbýlishús á einni hæð með bílageymslu við Víðiteig 20 í Mosfellsbæ. Húsið er innst í botnlanga, steinsteypt og óvenju háreist með mikilli lofthæð. Bílageymslan er í dag notuð sem íbúðarrými. Eignin er skráð 194,9 m2, þar af einbýli 161,5 m2 og bílskúr 33,4 m2, einnig eru um 43 m2 af geymslu- og svefnlofum í húsinu sem eru ekki í fermetratölu eignarinnar. Eignin skiptist í forstofu, arinstofu, borðstofu, eldhús, 4 svefnherbergi, hol , geymslu/þvottahús og sérstæðan bílskúr sem hefur verið innréttaður sem stúdíóíbúð. Gengið er úr arinstofu út á timburverönd í suðausturátt í fallegum skjólgóðum garði, með nýlegu gróðurhúsi. Frábær staðsetning miðsvæðis í Mosfellsbæ, stutt í skóla, verslanir, heilsugæslu og alla þjónustu. Stutt er í náttúruna og fallegar gönguleiðir, útivistarsvæði við Varmá og Úlfarsfell.Smelltu hér til að fá söluyfirlit sentNánari lýsing:Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Arinstofa er þremur þrepum niður frá holi, með parketi auk flísa við arinn. Útgengt er úr arinstofu út á hellulagða verönd þar sem gert er ráð fyrir útiarni.
Borðstofa er með parketi á gólfi.
Eldhús er með parketi á gólfi og U-laga innréttingu með eldhúsborði, bakaraofni og viftu. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og fataskápum. Útgengt er á timburverönd úr hjónaherbergi.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3 er með parketi á gólfi. Í herberginu er stigi upp á geymsluloft sem er um 7 fermetra gólfflötur sem er ekki í fermetratölu eignarinnar.
Svefnherbergi 4 er með parketi á gólfi.
Geymsluloft er undir súð yfir hjónaherbergi sem eru um 21 fermetra gólfflötur sem er ekki í fermetratölu eignarinnar.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með innréttingu handlaug, salerni og baðkari með sturtuaðstöðu. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi.
Hol er með parketi á gólfi.
Þvottahús/geymsla er inn af forstofu með dúk á gólfi.
Bílageymslan er sérstæð og hefur verið innréttuð sem
stúdíóíbúð með eldhúsi, stofu, svefnlofti og baðherbergi. Í eldhúsi er bakaraofn, helluborð og vifta. Á baðherbergi er innrétting með handlaug, salerni, sturtuklefi og tengi fyrir þvottavél.
Hiti er í hellulögðu bílaplani og gangstétt. Tengi fyrir hleðslustöð við bílaplan.
Garðurinn er gróinn með nýlegri timburverönd, markísu, pergólu og nýlegu gróðurhúsi.
Verð kr. 138.500.000,-