Vel skipulögð 5 herbergja raðhúsaíbúð með sambyggðum bílskúr á rólegum stað í Síðuhverfi. Eignin er samtals 161,8 fm. þar af er bílskúr 26,4 fm.
Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, sjónvarpsherbergi/svefnherbergi, þvottahús, kalda geymslu og bílskúr.
Forstofa er með flísar á gólfi og opnu fatahengi. Hol er með parket á gólfi og af því er timburstigi upp á aðra hæð þar sem er sjónvarpsherbergi. Hægt er að nýta rýmið sem svefnherbergi og þaðan er fallegt útsýni. Lítil lúga er inn á loft sem búið er að útbúa sem kalt geymsluloft. Stofa er með parket á gólfi Eldhús er með ágætri ljósri innréttingu með stæði fyrir uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð. Þar er einnig eldhúskrókur. Svefnherbergi eru þrjú á hæðinni, öll með parket á gólfi og hjónaherbergi með fataskáp. Baðherbergi er með mjög rúmgóðri innréttingu í kringum vask og bæði baðkar og sturtu ásamt opnanlegu fagi í glugga. Þvottahús er á milli íbúðarhluta og bílskúrs, þar eru flísar á gólfi. Innrétting er með vask og stæði fyrir þvottavél. Þar er einnig kalt búr eða geymsla og úr þvottahús er útgengt út í garð sem snýr til norðurs.
Bílskúr er með flísar á gólfi, rafdrifinni bílskúrshurð, inngönguhurð og góðum gluggum á stafni sem gefa birtu.
Annað: -Skúr á lóð er óeinangraður en þangað er leitt rafmagn -Stórt malbikað bílastæði fyrir framan eign -Timburpallur sem snýr til suðvesturs -Snúrustaur á lóð -Ekkert húsfélag er starfandi í raðhúsinu -Rólegt og barnvænt hverfi, stutt í verslun í Norðurtorgi
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut). 2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna). 4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.