Maríugata – Glæsilegt raðhús með einstöku útsýni yfir Heiðmörk Um er að ræða 240,5 fm miðju raðhús á tveimur hæðum í Urriðaholti, Garðabæ. Húsið stendur neðangötu með aðkomu að efri hæð. Óhindrað útsýni yfir náttúru Heiðmerkur, ekkert verður byggt fyrir neðan húsið. Húsið skilast fullbúið að utan sem innan, kaupandi hefur val um innréttingar og gólfefni og annan búnað annað hvort frá Byko eða Parka. Heildarstærð: 240,5 fm (þar af 30,6 fm innbyggður bílskúr) Möguleiki er að kaupa húsið í því ástandi sem það er í dag. Verð 193 milljónir
Neðri hæð: 3 svefnherbergi, fataherbergi, mjög stórt og rúmgott fjölskyldurými og stórt baðherbergi, þvottahús.
Efri hæð: Anddyri, gestasnyrting, eldhús, borðstofa og stofa með útgengi á svalir, forstofuherbergi/svefnherbergi, bílskúr Húsið er hannað með mikla áherslu á útsýni og sólarljós, stórir gluggar, rennihurðir, verönd og svalir tengja inni- og útisvæði á fallegan hátt. Samræmi er í efnisvali og heildaryfirbragði hússins
Frágangur: Gluggar: Ál/tré gluggar frá Idealcombi með tvöföldu K-gleri Klæðning: Neðri hæð múrhúðuð, efri hæð klædd með Alucobond álklæðningu 4 mm þykk. Burðarvirki: Steinsteyptir, járnbentir útveggir og plötur Þak: Torfklætt, með PVC dúk Gólfhiti og rör í rör lagnakerfi Bílskúr með álhurð, einangraður Svalir með glerhandriði Lóð frágengin með verönd og skjólveggjum
Umhverfi: Urriðaholt er vottað samkvæmt BREEAM Communities vistvottunarkerfi og einkennist af náttúruvænu skipulagi og fallegri nálægð við Heiðmörk, Urriðavatn og golfvöllinn Urriðarvöll. Öll helsta þjónusta er í nágrenninu og stutt er í leik- og grunnskóla. Maríugata 27 er einstakt tækifæri fyrir þá sem vilja nýtt, fullbúið og vandað heimili á einum besta útsýnisstað höfuðborgarsvæðisins með náttúruna fyrir utan gluggann og möguleika á að móta lokafrágang eftir eigin smekk.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.