Laugardagur 11. apríl
Fasteignaleitin
Opið hús:15. apríl kl 17:00-18:00
Skráð 11. apríl 2026

Bleikjukvísl 2

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
420.9 m2
11 Herb.
5 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
219.000.000 kr.
Fermetraverð
520.314 kr./m2
Fasteignamat
203.050.000 kr.
Brunabótamat
198.950.000 kr.
HL
Hreiðar Levý Guðmundsson
löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2043786
Landnúmer
110882
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Hreiðar Levý lögg. fasteignasali og Betri Stofan Fasteignasala kynna 420,9fm glæsilegt og reisulegt einbýlishús með tveimur aukaíbúðum og tvöfölldum bílskúr að Bleikjukvísl 2, 110 Reykjavík. Aðalhæðin er 197,3fm með inngangi ofan götu. Góð aðkoma að aðalhæðinni á stórt hellulagt bílaplan fyrir allt að 4 bíla. Innkeyrsla í 2 faldann 54,6fm bílskúr með rafdrifnum bílskúrshurðum. Auka íbúðirnar tvær eru á neðri hæð hússins, báðar með sérinngang og sérbílastæði á bílaplani neðan götu. Aukaíbúðirnar eru annarsvegar 90fm, 2ja herbergja (auðvelt að bæta við herbergi) með stórum aflokuðum viðarpalli og hinsvegar stúdíóíbúð. 90fm íbúðin er í útleigu og getur nýr eignadi tekið við núverandi leigusaming. Einstaklega fallegt og reisulegt steinsteypt einbýlishús, byggt 1984, teiknað af meistara Kjartani Sveinssyni byggingatæknifræðingi. Stór og mikil eign í vinsælu hverfi í Árbænum í Reykjavík. Býður upp á afar fjölbreytta nýtingarmöguleika. Nýta alla 420,9 fermetrana, leigja út aukaíbúðirnar eða stórfjölskyldan að kaupa saman og búa í sama húsinu en í sér íbúðum með sérinnganga.

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021, hreidar@betristofan.is

Frábær staðsetning í góðu fjölskylduhverfi í Ártúnsholti í Reykjavík þar sem stutt er í grunnskóla og leikskóla. Frábærar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni. Stutt er í helstu stofnæðar þar sem hverfið er afar vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins. 

Framkvæmdir síðustu ára:

2023
- Skipt um allt gólfefni á efri hæðinni.
2021
- Húsið málað að utan.
- Þakið málað.
2016
- Neðri hæð tekin alveg í gegn.
- Pallur smíðaður.
- Eldhús endurnýjuð, efri og neðri hæð.
- Eldhúsinnrétting á efri hæð sérsmiðuð frá Grindinni í Grindavík – Steinn á borðplötu.
- Öll baðherbergi endurnýjuð, á efri og neðri hæð.
- Gestasalernið á efri hæð tekið í gegn

Aðalhæðin: Afar rúmgóð með góðri forstofu, gestasalerni innaf forstofu, opinni stórri og bjartri stofu með stórglæsilegu útsýni yfir borgina, út á esjuna og út á haf. Rúmgott eldhús með fallegri eldhúsinnrétting og borðkrók, 3 rúmgóð svefnherbergi, nýlega uppgerðu baðherbergi með afar rúmgóðri "walk in" sturtu með innfeldum blöndurnartækjum. Þegar gengið er niður stigann á neðri hæð hússins er búið að koma fyrir þvottaaðstöðu neðst í stigahúsinu. Þar er hurð sem liggur inn í studioíbúðina, þannig að það er auðvelt að tengja hana saman við aðalhæðina kjósi eignadi að gera það.

Nánari lýsing:
Forstofa: Rúmgóð. Fatahengi með skúffum. Flísar á gólfi.
Gestasalerni: Innaf forstofu. Flísalagt í hólf og gólf. 
Stofa: Afar rúmgóð og björt. Með fallegum stórum gluggum með stórbrotnu útsýni yfir borgina, út á Esjuna og út á haf. Góð tenging við eldhús.
Eldhús: Endurnýjað fyrir um 10 árum með fallegri sérsmíðaðri innréttingu frá Grindinni. Gott skápa og vinnupláss. Granítsteinn á eldhúsbekkjum með undirlímdum vask. Ofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél, helluborð og háfur fyrir ofan helluborð ásamt aðstöðu fyrir ísskáp. Borðkrókur með stórglæsilegu útsýni yfir borgina, út á Esjuna og hafið.
Búr: Innaf eldhúsi með upphengdum skápum og bekkjarplássi.
Svefnherbergi I: Rúmgott með opnum fatahengjum og kommóðum. Útgengt út í garð úr herbergi.
Svefnherbergi II: Rúmgott barnaherbergi.
Svefnherbergi: III: Rúmgott barnaherbergi.
Tengibygging: Tengir saman hæð og bílskúr. Fjölbreyttir nýtingarmöguleikar.
Þvottahús: Gengið niður tröppur á jarðhæð. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Möguleiki á að opna inn í stúdíóíbúð frá þvottahúsi og samnýta með aðalhæð.

Bílskúr: 54,6fm tvöfaldur bílskúr með rafmagni, heitu og köldu vatni.
Bílastæði: 3-4 bílastæði á bílaplani fyrir framan bílskúr og inngang inn í garð.
Garður: Stór aflokaður garður, hellulagður að hluta og með tyrfðri flöt.

Neðri hæð:
Studioíbúðin: Standsett fyrir um 10 árum. Skiptist í alrými með svefnaðstöðu og elhúskrók ásamt rúmgóðu og fallegu baðherbergi með sturtu. Sérinngangur og sérbílastæði á bílaplani.

Nánari lýsing:
Alrými: Rúmgott og opið með svefnaðstöðu ásamt eldhúsinnrétting með neðri skápum og efri opnum hillum. Eldhús
Gangur: Tengir saman baðherbergi og alrými. Fataskápur á gangi.
Baðherbergi: Fallega uppgert fyrir um 10 árum. Flísalögð sturta með sturtuhengi, baðinnrétting með neðri skúffum, vaski og spegli fyrir ofan vask.

Bílstæði: Sér bílstæði á bílplani.

Tveggja herbergja íbúðin: Standsett fyrir um 10 árum. Gengið inn í forstofu / hol, þaðan er komið inn í afar rúmgóða stofu. Í vesturenda stofu er gengið inn í rúmgott svefnherbegi. Í austurenda stofu er gengið inn í rúmgott og fallegt eldhús. Innaf eldhúsi er þvottahús íbúðar. Auðvelt að bæta við öðru svefnherbergi. Stór aflokaður viðarpallur. Sérinngangur og sérbílastæði á bílaplani. Íbúðin var tekin alveg í gegn 2016 og m.a. baðherbergi og eldhús endurnýjað.

Nánari lýsing:
Stofa: Rúmgóð stofa. Möguleiki að útbúa annað svefnherbergi.
Svefnherbergi: Rúmgott, innaf stofu.
Eldhús: Innrétting með vask, gaseldavél, ísskápur og upphengdur skápur. Borðkrókur.
Þvottahús: Innaf eldhúsi með aðstöður fyrir þvottavél og þurrkara, skolvaskur og upphengdar hillur.
Geymsla: Innan íbúðar.
Baðherbergi: Rúmgott. Baðinnrétting með 4 skúffum og vask ofan á. Stór spegill fyrir ofan vask. Rúmgóð opin sturta með innfeldum blöndunartækjum og glervegg. Upphengt salerni og upphengdur handklæðaofn. Flísar á gólfi og að stórum hluta veggja.

Pallur: Stór aflokaður viðarpallur.
Bílastæði: Sér bílastæði á bílaplani.

Stórt og reisulegt einbýlishús teiknað af Kjartani Sveinssyni með 2 aukaíbúðum og tvöföldum bílskúr í vinsælu, grónu og fjölskylduvænu hverfi í Ártúnsholtinu.

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur hreidar@betristofan.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
09/03/2026203.050.000 kr.56.554.000 kr.420.9 m2134.364 kr.Nei
31/08/201681.250.000 kr.85.000.000 kr.420.9 m2201.948 kr.
15/08/201472.800.000 kr.86.000.000 kr.420.9 m2204.324 kr.
11/10/201374.800.000 kr.64.000.000 kr.420.9 m2152.055 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1984
54.6 m2
Fasteignanúmer
2043786
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
23.450.000 kr.

Myndir (50)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Akurgerði 16
Bílskúr
Skoða eignina Akurgerði 16
Akurgerði 16
190 Vogar
230.2 m2
Einbýlishús
614
404 þ.kr./m2
93.000.000 kr.
Skoða eignina Glitvellir 27
Bílskúr
Skoða eignina Glitvellir 27
Glitvellir 27
221 Hafnarfjörður
237.5 m2
Einbýlishús
614
712 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Freyjuvellir 17
Bílskúr
Skoða eignina Freyjuvellir 17
Freyjuvellir 17
230 Reykjanesbær
183.5 m2
Einbýlishús
514
554 þ.kr./m2
101.600.000 kr.
Skoða eignina Víðiteigur 30
Bílskúr
Opið hús:15. apríl kl 16:30-17:00
Skoða eignina Víðiteigur 30
Víðiteigur 30
270 Mosfellsbær
222.4 m2
Einbýlishús
826
607 þ.kr./m2
134.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin