Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (bjarni@remax.is/s:662-6163) kynnir fallegt og vel viðhaldið einbýlishús við Hraunbæ 49 í Hveragerði. Íbúðin er skráð 151,4fm og bílskúrinn 39fm, samtals 190,4fm. Aukin lofthæð og aukin hæð hurða. Hiti í gólfum. Hellulagt bílaplan. Sólpallur til suðurs með skjólveggjum, geymsluskúr. Kjallari með 2,50 lofthæð undir öllu húsinu.Eignin skiptist í anddyri, hol, gesta wc, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu, bílageymslu og kjallara. Nánari lýsing:Anddyri rúmgott með fataskáp á heilum vegg, flísar á gólfi, innangengt í bílskúr.
Hol er inn af anddyri, þaðan er gengið inn í eldhús, stofu og inn á svefnherbergisgang.
Gestanyrting með upphengdu wc, nett innrétting, flísar á gólfi.
Eldhúsið er opið við stofu, rúmgott og bjart, stór innrétting, helluborð með háf yfir, eyja með góðu skápaplássi, flísar á gólfum, útgengt á sólpall.
Stofan er opin við eldhús, björt með flísum á gólfi, útgengt á sólpall með heitum potti.
Svefnherbergin eru þrjú, frá 10,3-13,7fm, öll með fataskápum, parket á gólfum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, góð innrétting, upphengt wc, handklæðaofn, sturta, útgengt á sólpall með heitum potti.
Þvottahús með rúmgóðri innréttingu, þvottavél og þurrkari í vinnuhæð, vaskur, flísar á gólfi, hurð út.
Bílskúrinn er mjög rúmgóður, sér inngangur, bílskúrshurða opnari, heitt og kalt vatn, vaskur, flísar á gólfi.
Hraunbær 49 stendur við 12 húsa botnlanga. Leikskóli er í næsta nágrenni og stutt í alla helstu þjónustu bæjarins.
Allar upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða bjarni@remax.is.
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar, sjá upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.