Fimmtudagur 19. mars
Fasteignaleitin
Skráð 4. feb. 2026

Bollagarðar 11

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Seltjarnarnes-170
225.9 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
198.000.000 kr.
Fermetraverð
876.494 kr./m2
Fasteignamat
160.600.000 kr.
Brunabótamat
109.000.000 kr.
ÞS
Þórir Skarphéðinsson
löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2067121
Landnúmer
117101
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Endurnýjað 2023
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
2
Inngangur
Sérinngangur
Betri Stofan fasteignasala og Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lgfs, sími 844-9591 - thorir@betristofan.is, kynna:

Vel skipulagt og mikið endurnýjað 225,9 fm raðhús með 4-6 svefnherbergjum og innbyggðum bílskúr á fjölskylduvænum stað á Seltjarnarnesi. Góð aðkoma er að húsinu, hellulögn með snjóbræðslu. Allt húsið er parketlagt og eru innréttingar sérsmíðaðar  eftir teikningum Rutar Káradóttur. Þak var endurnýjað ásamt þakgluggum 2023, gluggar hafa verið yfirfarnir og málaðir og gler endurnýjað að hluta. Þakkanntur og annað tréverk yfirfarið 2025. Neysluvatnslagnir hafa verið endurnýjaðar, varmaskiptir á neysluvatni. Lagnagrind mikið endurnýjuð. Raflagnir og lýsing hefur verið yfirfarið og endurnýjað. Skjólgóður suðurgarður hefur verið endurgerður, garðskúr byggður og stór pallur. Nýr skjólveggur milli garða smíðaður 2024 auk þess sem hús var málað að utan. Virkilega vönduð eign sem hefur fengið gott viðhald í gegnum árin. 

Nánari lýsing:


Komið er inn í forstofu með gólfflísum og góðum fataskáp. Hiti í gólfi.  Úr forstofu er innangengt í bílskúr.  Úr forstofu er gengið inn í innri forstofu með gestasnyrtingu á vinstri hönd og rúmgott herbergi á hægri hönd. Gestasnyrting er flísalögð með vandaðri viðarinnréttingu, upphengdu salerni og Vola blöndunartækjum. Gegnheilt eikarparket á innri forstofu og herbergi.  Stigar upp á miðpall og niður á jarðhæð.
Á miðpalli er komið í fallegt opið rými sem samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu. Gegnheilt eikarparket á öllu rýminu:
Eldhús er rúmgott með sérsmíðuðum innréttingum frá HBH, sandsteinn á borðum, vönduð tæki m.a. SMEG gaseldavél og Vola blöndunartæki. 
Borðstofa og stofa rúmgóðar og bjartar, glæsilegur arinn í stofu. Innfeld stýranleg lýsing er í öllu rýminu og bose hljóðkerfi. Úr stofu er gengið út á suðursvalir með stiga niður í garð.
Úr stofu er stigi upp á efsta pall sem skiptist í tvö rúmgóð svefnherbergi og baðherbergi.  Inn af öðru svefnherberginu er vandað fataherbergi. Útgengt á svalir sem snúa til norðurs. Gegnheilt eikarparket á herbergjum og gangi.
Gengt hjónaherbergi er baðherbergi. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, vönduð innrétting, Vola blöndunartæki, upphengt salerni, veglegt hornbaðkar með sturtu. Hátt til lofts og rafstýrður opnanlegur gluggi, gluggi sem gefur mikla birtu inn.
Úr innri forstofu er gengið niður á jarðhæð sem skiptist í stórt herbergi sem auðvelt er að skipta upp í tvö herbergi, stórt opið rými sem í dag er nýtt sem sjónvarpsherbergi og vinnuaðstaða. Eikarparket á gólfum.  Inn af því er endurnýjað þvottaherbergi með sturtu og geymslu. Úr þvottaherbergi er útgengt í glæsilegan gróinn garð sem snýr í suður.
Bílskúr er innbyggður skráður 21,2 fm,  bílskúrshurð með fjarstýrðri rafmagnsopnun.
Aðkoma að húsinu er norðan við húsið, planið er hellulagt og með snjóbræðslu. Rúmgóðar, lokaðar útigeymslur bæði fyrir framan og aftan hús. Mikið endurnýjaður leikvöllur er fyrir framan húsið sem er hluti sameignar nágranna. Framkvæmdasjóður vegna endurnýjunar og viðhalds er til staðar. Áframhald verður á  endurnýjun leiktækja.

Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
01/06/201144.200.000 kr.59.000.000 kr.225.9 m2261.177 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (58)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ljárskógar 2
3D Sýn
Skoða eignina Ljárskógar 2
Ljárskógar 2
109 Reykjavík
224.3 m2
Einbýlishús
825
802 þ.kr./m2
179.900.000 kr.
Skoða eignina Fjóluás 30
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Fjóluás 30
Fjóluás 30
221 Hafnarfjörður
300.4 m2
Einbýlishús
627
679 þ.kr./m2
204.000.000 kr.
Skoða eignina Melabraut 12
Opið hús:22. mars kl 14:00-14:30
Skoða eignina Melabraut 12
Melabraut 12
170 Seltjarnarnes
95.2 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
1040 þ.kr./m2
99.000.000 kr.
Skoða eignina Skólabraut 3
Skoða eignina Skólabraut 3
Skólabraut 3
170 Seltjarnarnes
78 m2
Fjölbýlishús
211
896 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin