Sunnudagur 1. júní
Fasteignaleitin
Skráð 23. maí 2025
Deila eign
Deila

Eskihlíð 12

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
79.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
74.900.000 kr.
Fermetraverð
943.325 kr./m2
Fasteignamat
60.950.000 kr.
Brunabótamat
35.050.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1946
Þvottahús
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2030317
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Endurnýjaðar að hluta
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Verið að endurnýja
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Nýtt á skrá! Eskihlíð 12A Reykjavík - Bókið skoðun

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna fallega og sjarmerandi 3ja - 4ra herbergja íbúð á 3. hæð í fallegu fjölbýlishúsi við Eskihlíð 12A í Reykjavík. Íbúðin er alls 79,4 fermetrar að stærð með tveimur svefnherbergjum innan íbúðar. Auka herbergi/skrifstofa er staðsett í risi ásamt geymslu íbúðar. Rúmgóð stofa og fallegt endurnýjað eldhús með rými fyrir borðstofuborð. Útgengi svalir til vesturs sem snúa inn í bakgarð hússins. Gott anddyri/hol, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Sameiginlegt þvottaherbergi er staðsett í risi hússins ásamt hjóla- og vagnageymslu í kjallara. Auk þess er sameiginlegt salerni og vaskur í risi sem þó þarfnast endurnýjunar.

Húsið, sem er byggt árið 1946, lítur vel út að utan. Á árunum 2017-2018 var húsið múrviðgert og húsið/gluggar málað. Þá voru drenlagnir endurnýjaðar ásamt stétt og snjóbræðslu komið fyrir í stétt. Í dag eru framkvæmdir í gangi við húsið og eru verklok fyrirhuguð í október 2025. Eftirlitsaðili á verkinu er Verksýn. Samkvæmt yfirlýsingu húsfélags: Í þeim framkvæmdum sem eru í gangi er verið að skipta um þá glugga og svalahurðir sem var komið á tíma og þörf var á endurnýjun. Þá verður þakið endurnýjað (þakjárn, fylgihlutir þess, timbur sem er komið á tíma, þakrennur og allir þakgluggar). Flísar á svalagólfum fjarlægðar sem við á, öll svalagólf alhreinsuð, filltuð, sílanborin og máluð. Að loknum framkvæmdum verður gert við skemmdir á blokk og hún máluð ásamt gluggum.

Um er að ræða frábæra fjölskyldueign í þessu vinsæla hverfi í Hlíðunum. Stutt er í alla verslun og þjónustu, leikskóla, grunnskóla (einnig Ísaksskóla) og menntaskóla. Íþróttasvæði, sundlaug og Klambratún í næsta nágrenni. Miðbærinn í göngufjarlægð.

Nánari lýsing:

Forstofa/hol: Er rúmgóð með parketi á gólfi og fatahengi.
Stofa: Er rúmgóð og með parketi á gólfi. Gluggar til vesturs inn í bakgarð hússins.
Eldhús: Með parketi á gólfi og fallegri eldhúsinnréttingu með góðu skápaplássi. Gott rými fyrir borðstofuborð. Stál bakaraofn, innb. uppþvottavél, innb. kæliskápur með frysti, spansuðu helluborð og stál háfur. Gluggar til vesturs og útgengi á svalir.
Svalir: Snúa til vesturs inn í bakgarð hússins.
Hjónaherbergi: Með harðparketi á gólfi, opnum skápum og glugga til austurs.
Svefnherbergi: Með harðparketi á gólfi, opnum skápum og glugga til austurs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi. Baðkar með sturtutækjum, innrétting við vask, skápar, salerni, handklæðaofn og útloftun.

Auka herbergi: Fylgir íbúðinni sem er staðsett í risi hússins. Plastparket, skápur og gluggi til vesturs (þakgluggi).
Geymsla: Er staðsett í risi hússins við hlið auka herbergis. Plastparket og gluggi til vesturs (þakgluggi).
Þvottaherbergi: Er sameiginlegt í risi hússins. Sér tenglar fyrir hverja íbúð fyrir þvottavél og þurrkara. Þvottasnúrur og þakgluggi til austurs.
Hjóla- og vagnageymsla: Er staðsett á jarðhæð/kjallara hússins. Gluggi til austurs og hjólasnagar. Útgengi úr sameign á baklóð hússins.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
05/10/201834.200.000 kr.44.000.000 kr.79.2 m2555.555 kr.
17/01/201420.050.000 kr.25.600.000 kr.79.2 m2323.232 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skipholt 1_504
Skoða eignina Skipholt 1_504
Skipholt 1_504
105 Reykjavík
61.1 m2
Fjölbýlishús
211
1259 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Hátún 8
Opið hús:05. júní kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hátún 8
Hátún 8
105 Reykjavík
88.3 m2
Fjölbýlishús
413
832 þ.kr./m2
73.500.000 kr.
Skoða eignina Bólstaðarhlíð 48
Bólstaðarhlíð 48
105 Reykjavík
96 m2
Fjölbýlishús
312
800 þ.kr./m2
76.800.000 kr.
Skoða eignina Stakkahlíð 17A
Bílastæði
Skoða eignina Stakkahlíð 17A
Stakkahlíð 17A
105 Reykjavík
84 m2
Fjölbýlishús
211
876 þ.kr./m2
73.600.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin