Þriðjudagur 3. júní
Fasteignaleitin
Skráð 1. júní 2025
Deila eign
Deila

Skipholt 1_504

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
61.1 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
76.900.000 kr.
Fermetraverð
1.258.592 kr./m2
Fasteignamat
61.050.000 kr.
Brunabótamat
37.450.000 kr.
Byggt 1960
Lyfta
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2522308
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
5
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
4
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Háborg fasteignasala kynnir: Íbúð 504, rúmgóða 2ja herbergja íbúð í fallegu enduruppgerðu lyftuhúsi í útjaðri miðborgarinnar. Inngangur frá svalagangi. Forstofa með góðum skápum, Eitt svefnherbergi 9,9 fm. Stórt bjart alrými með útgengi á 13,7 fm suðursvalir. Baðherbergi með sturtu og þvottaaðstöðu. Harðparket á gólfum og innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Sjálf íbúðin er 51,2 fm og geymsla í kjallara 8,9 fm. Einstakar sameiginlegar þaksvalir á 5. hæð. Örstutt göngufæri í matvöruverslun og niður á Hlemm sem er að umbreytast í grænt og vænt almenningsrými.
Heimasíða verkefnis


Húsið: Skipholt 1 er glæsileg endurbygging á frábærum stað í hjarta Reykjavíkur á horni Stórholts og Skipholts mót hásuðri. Í reisulegu húsi þar sem Listaháskóli Íslands var starfræktur í áratugi hafa nú verið innréttaðar 34 heillandi íbúðir og tvö atvinnurými. Einstakar sameiginlegar þaksvalir á 5.hæð hússins auka lífsgæði allra íbúa, en þar er sólríkt og magnað útsýni til sjávar og fjalla.

Hönnun: HAF studio kom að hönnun og efnisvali í íbúðirnar. Allar íbúðir afhentast fullbúnar með 8mm harðparketi frá Agli Árnasyni , og innbyggðum ísskáp og uppþvottavél frá AEG.
Innréttingar koma frá GKS, flísar frá Harðviðarvali, hurðar frá Agli Árnasyni, blöndunartæki í eldhúsi og baðherbergi eru frá Grohe, sturtutæki eru einnig frá Grohe, salerni eru með hæglokandi setum, heimilistæki eru frá AEG (ofn, helluborð, innbyggður ísskápur, vifta með kolafilter og uppþvottavél) Hefðbundið ofnakerfi er á íbúðum með hitastýribúnaði frá Danfoss.

Garðurinn: Á bak við húsið er heillandi og skjólgóður inngarður hannaður af Hermanni Ólafssyni landslagsarkitekt.
Þar kallast fjölbreyttur gróður á við hellur og útskorið malbik sem myndar göngustíg sem liðast eins og lækur eftir garðinum. Pollaljós og garðljós gefa fallega birtu. Innst til hægri er upplyft hellulagt dvalarsvæði.

Staðsetning: Hér er allt sem þarf fyrir nútímalegan miðborgarlífsstíl. Fjöldi veitingastaða og fjölbreytt þjónusta í stuttu göngufæri að ógleymdri útivistarperlunni Klambratúni.
Sjá upplýsingar á heimasíðu verkefnisins https://skipholt1.is/ . *Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á 0,3% af brunabótamati.

Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000, thorunn@haborg.is
Jórunn Skúladóttir lgf í síma: 845-8958 eða jorunn@haborg.is, og Katla Hanna Steed lgf s:822-1661 og katla@haborg.is.

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Háborg fasteignasala ehf
https://www.haborg.is

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Borgartún 24 213
Opið hús:03. júní kl 11:30-12:45
Borgartún 24 213
105 Reykjavík
79.8 m2
Fjölbýlishús
312
1001 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Heklureitur - íbúð 201
Heklureitur - íbúð 201
105 Reykjavík
77 m2
Fjölbýlishús
312
1038 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Stórholt 12
Skoða eignina Stórholt 12
Stórholt 12
105 Reykjavík
80.6 m2
Fjölbýlishús
423
929 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Úthlíð 10
Skoða eignina Úthlíð 10
Úthlíð 10
105 Reykjavík
75.4 m2
Fjölbýlishús
313
972 þ.kr./m2
73.300.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin