STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Opna og bjarta 87,2 fm 3ja herbergja íbúð á 4. hæð í snyrtilegu fjölbýli, aðalinngangur er á annarri hæð.
Lykilpunktar varðandi eignina:Húsið múrviðgert og málað 2017/2018 ásamt því að gler og gluggar á norðurhlið voru endurnýjaðir. Baðherbergið var endurnýjað 2020 og eldhús var líka endurnýjað rétt áður. Skipt var um dósir og tengla í íbúð. Skipt var um gólfefni á íbúð ca 2016. Fataskápur í aðalsvefnherbergi var endurnýjaður 2024. Mikið óhindrað útsýni til suðurs. Stutt er í alla helstu þjónustu eins og leik- og grunnskóla, verslun, veitingastaði, bókasafn, listasafn, kirkja og margt fleira einnig er stutt út á stofnbraut og þjónustu almenningsvagna.
Íbúðin er 83 fm (merkt 01-0404) og geymsla 4,2 fm (merkt 01-0409) samtals er eignin skráð 87,2 fm skv skráningu Þjóðskrá Íslands.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.isForstofa er með harðparketi á gólfi ásamt upphengi.
Stofa er með harðparketi á gólfi og þaðan er útgengt á djúpar og skjólgóðar suðursvalir með miklu óhindruðu útsýni.
Eldhús er með harðparket á gólfi og hvítri snyrtilegri innréttingu með grárri borðplötu.
Svefnherbergin eru tvö og eru harðparketi á gólfum og skápar, í barnaherbergi er frístandandi skápur.
Baðherbergi er með flísar í hólf og gólf, sturtuklefa, upphengt wc, handklæðaofn og skúffur undir vask.
Þvottahús á baðherbergi en er líka í sameign á efstu hæð hússins.
Geymsla er í sameign á hæð.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign í kjallara.